Mía fær lyfjabrunn

 
Bókin Mía fær lyfjabrunn er bók nr 1 í bókaflokknum um hugrökku Míu og vin hennar Nóa.
Mía fær lyfjabrunn kom út árið 2020 og hefur vakið gríðarlega athygli um allan heim. Hún er nú þegar þýdd á 3 tungumálum og er í vinnslu að prenta hana á þeim tungumálum sem hún hefur verið þýdd yfir á.
Bókin var tilnefnd til hvatningarverðlauna ÖBÍ haustið 2022 ásamt því að Þórunn Eva höfundur bókarinnar og stofnandi Mia Magic hlaut titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2021.
Þessi dásamlega bók er upphafið af öllu því sem Mia Magic stendur fyrir og er hugarfóstur Þórunnar Evu, móðir tveggja langveikra drengja.
Bókina er hægt að hlusta á inn á Hljóðbókasafninu ásamt því að búið er að þýða hana yfir á blindraletur.