Kolbrún og Rúnar fengu úthlutað Míuboxi foreldra, Jón Sverrir færði þeim það í lok nóvember. Rúnar var heima og hafði ekki hugmynd um þetta og kom alveg af fjöllum. Þetta var því óvænt ánægja fyrir hann. Kolbrún var á skutli með börn á æfingar en mætti svo heima ótrúlega spennt því hún vissi af þessu! Hún fór beinustu leið í að búa til ótrúlega fallegt story á instagram um Míuboxið þeirr og vá hvað var gaman að horfa á það! Takk fyrir að leyfa okkur að gleðja ykkur elsku Kolbrún og Rúnar.
Kolla er ein mögnuð kona, ég hef þekkt þau í nokkur ár en það sem margir vita ekki er að hún er framkvæmdarstjóri Gleym Mér Ei styrktarfélags!
Takk allir sem hjálpuðu okkur að gleðja dásamlegustu hjón Garðabæjar. Hér að neðan eru myndir af því sem var í Míuboxinu þeirra ásamt því að þau fengu ó svo mörg falleg gjafabréf.




