Við fengum þann heiður að fá að prófa flass.app á viðburðinum okkar í tengslum við maraþonið – og það sló heldur betur í gegn!
Flass er stafræn útgáfa af gömlu góðu einnota myndavélinni, fullkomin fyrir viðburði þar sem gestirnir sjálfir fá að fanga stemninguna. Gestirnir okkar skönnuðu einfaldlega QR-kóða og fengu að taka allt að 24 myndir hver.
Útkoman var ótrúlega skemmtileg. Í stað þess að sjá viðburðinn aðeins frá sjónarhorni eins ljósmyndara fengum við augnablik frá öllum áttum – stóru stundirnar, litlu smáatriðin og allt það óvænta þar á milli. Myndirnar verða fyrir vikið einstaklega lifandi og gefa svo góða mynd af stemningunni sem ríkti.
Við getum svo sannarlega mælt með flass.app fyrir alls konar viðburði. Þetta er einföld og skemmtileg leið til að virkja gestina og um leið safna saman minningum sem annars hefðu mögulega aldrei náðst á mynd. Við erum nú þegar ákveðin í að nota Flass aftur og þökkum kærlega fyrir okkur. Hér fyrir neðan má sjá brot af þeim augnablikum sem gestirnir okkar fönguðu sjálfir.





