Aurora Basecamp x Mia Magic

Aurora Basecamp x Mia Magic

Miðvikudaginn 19. ágúst héldum við notalegan viðburð í tilefni Reykjavíkurmaraþonsins í Aurora Basecamp. Þar tókum við á móti hlaupurum, afhentum boli og þakkargjafir og áttum góða stund með gestum. Margir lögðu leið sína til okkar einfaldlega til að spjalla og njóta samverunnar, sem gerði daginn enn ánægjulegri.

Við kunnum einstaklega vel að meta svona viðburði þar sem gefst tækifæri til að hitta fólkið okkar, eiga góð samtöl og njóta samverunnar. Umhverfið í Aurora Basecamp setti svo sannarlega punktinn yfir i-ið og skapaði hlýlega og notalega stemningu.

Við mættum einnig með mikið úrval af Míu-peysum sem hafa verið prjónaðar af okkar frábæru prjónurum víðs vegar um landið og raunar víðar um heim, því okkur berast einnig peysur frá prjónurum erlendis.

Það vakti mikla lukku hjá krökkunum að fá að velja peysur á Míurnar sínar og voru sjálfboðaliðar Míu ekki síður spenntir að skoða allt fallega handverkið.

Næst liggur leiðin með þær peysur sem eftir eru á Barnaspítalann. Þar munu þær bíða eftir hugrökkum krökkum sem fá að velja sér peysu á Míuna sína á leikstofunni.

Myndir: Rakel Ósk Sigurðardóttir, ljósmyndari

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts