Mía fer í tívolí
Bókin Mía fer í Tívolí kom út árið 2022. Bókin er nr 2 í röðinni í bókaflokknum um hugrökku Míu og vin hennar Nóa.
Höfundur bókarinnar er Þórunn Eva G. Pálsdóttir en Bergrún Íris Sævarsdóttir myndskreytti. Jón Sverrir sonur Þórunnar fékk það skemmtilega hlutverk að aðstoða Bergrúnu og litaði teikningarnar í bókinni.
Bókina er hægt að hlusta á inn á Hljóðbókasafninu ásamt því að búið er að þýða hana yfir á blindraletur.
Mía fer í tívolí er uppseld eins og er. Við erum að safna fyrir endurprenti. Ef þú vilt hjálpa okkur að safna þá er hægt að styrkja hér að neðan. Takk fyrir þitt framlag.