Hér er smá frá krökkunum í Verzló: Nemendur á fyrsta ári í Verzlunarskóla Íslands fengu það verkefni snemma á haustönn að vinna sjálfboðavinnu með félagi eða samtökum að eigin vali. Var þetta partur af þróunarverkefni skólans með áherslu á samkennd. Var nemendum skipt upp í hópa og fengið það verkefni að velja sér málefni. Mía Magic kom strax upp í hugann hjá okkar hópi, þar sem sum okkar þekkja einstaklinga sem hafa fengið gjafir frá Míu.
Við höfðum því samband við Þórunni hjá Míu, fengum fljótt jákvætt svar og settum allt í gang. Margir tölvupóstar voru sendir á ýmis fyrirtæki og við erum öll afar þakklát fyrir framlag þeirra. Þórunn segir að við höfum gert þetta allt sjálf en við erum nú ekki alveg sammála því. Þetta hefði aldrei verið mögulegt án hennar stuðnings yfir þær vikur sem verkefnið stóð yfir. Við hittum hana í fyrsta skiptið á kaffihúsi og það var augljóst hún væri mjög skemmtileg og sparaði ekki djókin. Hún tekur þetta allt á gleðinni. Allt gekk mjög vel og þótti okkur gaman að undirbúa Míu boxin.
Eftir að búið var að safna öllum gjöfunum eyddum við hópurinn tæpum fjórum klukkutímum saman að spjalla og finna hugmyndir fyrir uppsetningu boxanna. Næsta dag var myndatakan þar sem Daði hjá Chili Studio tók glæsilegar myndir af boxunum. Við fórum svo aftur á kaffihús saman og skrifuðum á kortin handa krökkunum, spjölluðum saman um allt milli himins og jarðar og Þórunn fékk að læra nýtt „slangur“ frá okkur.

Stóra stundin rann að lokum upp þegar við loks afhentum Míuboxin. Við vorum gríðarlega spennt. Ragnar Frosti og fjölskylda hans tóku vel á móti okkur og þar var einn fjögurra mánaða krúttlegur hvolpur sem við lékum við. Við spjölluðum við fjölskyldu hans og fengum tækifærið til að kynnast honum. Næst var farið til Bríetar Klöru þar sem annar fjörugur hundur tók á móti okkur. Við sáum hana opna boxið og hún var alsæl með allt og mamma hennar gladdist sömuleiðis með dóttur sinni.

Þær tóku mjög vel á móti okkur á heimili sínu þar sem við töluðum um margt og mikið. Stundin þegar við hittum krakkana var virkilega einlæg og falleg. Þau eru einu ári yngri en við og það að geta fært þeim glaðning sem við útbjuggum sjálf var gefandi fyrir okkur. Við erum svo heppin að fá að taka þátt í þessu einstaka verkefni og kynnast starfi Míu Magic. Okkur þykir öllum mjög vænt um Míu Magic og það var stórkostleg upplifun að geta glatt þessa frábæru krakka og kynnast þeim og þeirra fjölskyldu. Við þökkum kærlega fyrir okkur og við viljum þakka Þórunni sérstaklega fyrir að vera með okkur frá A til Ö, hún er hreint út sagt frábær og yndisleg.
Takk allir sem hjálpuðu okkur að gleðja Bríeti og Ragnar.
@snuranis @pinupons @wagtail.is @66north @isbudhuppu @artasanehf @cu2heildsala @handa.ther @mist.and.co @chilliinjune @rosakot.is @bluelagoonskincare @aevarthorben @sambioin @sport24reykjavik @dominos_iceland @better_you
Skrifað af Gyðu fyrir hönd hópsins. Bestu kveðjur: Andri, Bryndís, Erika, Gyða og Lovísa, nemendur úr Verzló.




