Mia Magic hlýtur styrk á Blue Góðgerðarfest

Mia Magic hlýtur styrk á Blue Góðgerðarfest

Mia Magic var eitt af mörgum dásamlegum málefnum sem hlutu styrk á Blue Góðgerðarfest þann 14. október sl.
Texti skrifaður þann 14. október á facebook.
Þessi styrkur hefur alveg sérstaka þýðingu fyrir mig persónulega og á sér svolitla baksögu. Grunnhugmyndin að Míu og Mia Magic fæddist nefnilega heima í Grindavík. Við eigum tvo syni sem glíma við langvinn veikindi. Á meðan við bjuggum enn í Grindavík og upp á Ásbrú, vorum við tíðir gestir bæði á heilsugæslunni í Grindavík og hjá Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS) Þótt þeirra aðal læknateymi hafi verið á Barnaspítala Hringsins nutum við ómetanlegrar aðstoðar og þjónustu hér heima á Suðurnesjunum. Þar var gott að eiga fólk að sem þekkti okkur og var til staðar þegar á þurfti að halda. Þetta eru því ekki bara stofnanir eða staðir í mínum huga, heldur fólk sem á sinn sess í okkar sögu.
Að fá í dag styrk frá Suðurnesjunum, svæðinu þar sem hugmyndin að Míu kviknaði fyrst og þar sem við sjálf höfðum svo mikið reitt okkur á heilbrigðisþjónustuna, var því meira en lítið gæsahúðar móment fyrir mig. Það sem gerir þetta allt enn fallegra er að Mía hefur sjálf fundið sér heimili á Suðurnesjunum. Fjölmargir skólahjúkrunarfræðingar á svæðinu hafa skreytt veggina hjá sér með Míu vegg límmiðunum og bækurnar okkar eru mikið notaðar í starfi þeirra. Sama má segja um HSS. Mía á orðið heima á slysó, í ungbarnaverndinni og víðar innan stofnunarinnar. Mér þykir ótrúlega vænt um að vita af henni þar og fæ reglulega fallegar myndir sendar af Míu frá þeim sem sækja þjónustu á HSS sem dæmi.

Talandi um HSS! Sigurður Björnsson, barnalæknir á HSS, hefur að minnsta kosti tvisvar verið meðal tíu efstu tilnefndu til Míuverðlaunanna. Það er eitthvað svo fallegt við þessa hringrás. Að hafa sjálf verið foreldri sem þurfti að leita eftir aðstoð fyrir börnin sín og fá svo, nokkrum árum síðar, að sjá Míu verða hluta af því umhverfi sem tekur á móti öðrum börnum og fjölskyldum. Aldrei óraði mig fyrir, þegar fyrstu hugmyndirnar að Míu kviknuðu heima í Grindavík, hversu víða hún ætti eftir að rata og hversu mörg börn, fjölskyldur og heilbrigðisstarfsfólk hún ætti eftir að ná til.

Hjartans þakkir til Blue Góðgerðarfest fyrir styrkinn, stuðninginn og traustið. Þessi styrkur hjálpar okkur að halda áfram að skrifa, prenta og gefa bækurnar okkar, fræða, gleðja og styðja langveik börn og fjölskyldur þeirra. Kannski er það einmitt það sem snertir mig mest í dag. Að hugmynd sem fæddist heima í Grindavík fái nú stuðning frá Suðurnesjunum til að halda áfram að láta gott af sér leiða.
Með hjartað fullt af þakklæti. TAKK! 
Þórunn Eva

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts