LILJA & HÖRÐUR REYNIR

LILJA & HÖRÐUR REYNIR

Í desember afhentum við elsku Lilju og Herði Reyni foreldra Míubox.

Lilja kom reyndar og sótti sitt Míubox eftir margar tilraunir til að hittast. Stundum ganga hlutirnar bara ekki upp eins og lagt var upp með en þá er það bara bara plan B. Eitthvað sem foreldrar langveikra barna eru með meistaragráðu í !  Það var notalegt að hitta Lilju, hún kom  í mikilli hálku, myrkri og rétt fyrir jól. Við Lilja höfum þekkst í fjölda mörg ár og var því dásamlegt að hún skyldi fá foreldra box. Elska að sjá brosin og þakklætið á öllum sem fá Míubox.

Takk allir sem hjálpuðu til við að gleðja elsku Lilju og Hörð Reyni. Þið eruð draumur í dós. Hér að neðan má sjá allar þær vörur sem þau fengu. + notalega stund á EXETER hótel.

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts