Dásamlega Bergdís Líf, ég hef „þekkt“ hana næstum alla hennar ævi. En þó aðalega í gegnum internetið. Mömmur langveikra barna tengjast oft ansi sterkum böndum þó svo að þær hittist ekki endilega oft eða kannski aldrei í persónu.
Bergdísi og mömmu hef ég þó hitt nokkrum sinnum og því var ótrúlega notalegt að enda mjög langan dag í dásamlegu kvöldkaffi hjá þeim. Öll fjölskyldan mætt í að taka á móti okkur og vá hvað var gaman að sitja við eldhúsborðið og spjalla við þau.
Bergdís sagði okkur sögur, Aníta Rós stóra systir sat einnig með okkur og spjallaði. Við fengum dásamlegt veður allan tímann og vá hvað var fallegt að fara frá þeim kl 22:58 um kvöldið. Þá vorum við auðvitað búnar að æsa upp Bergdísi með allskonar sprelli, sykri og fleiru skemmtilegu. Mánudagskvöld og skóli daginn eftir, LOL! æji dúllan.. örugglega verið lúin í skólanum daginn eftir, en það má, Míu bíllínn mætir nú ekki oft í heimsókn ! Skórnir slógu í gegn eins og allt annað sem hún fékk.

Takk allir sem hjálpuðu okkur að gleðja elsku Bergdísi Líf.
@betteryou_island @miaverslun.is @rosakot.is @storytel @hulan.is @krakkakrutt @essei_heildverslun @cu2heildverslun @margtogmikið @pinupons @s4s.is @gumislandi @dekalfilmur
Elva Margrét færði okkur þetta flotta snyrtiveski með allskonar fínu skvísudóti í beint frá USA. TAKK elsku Elva fyrir að vera ofur mamman með allt á hreinu fyrir svona flottar skvísur.
xo, Þórunn Eva






