Jana Eir, elsku skottan.
Því miður kvaddi elsku Jana Eir áður en við náðum að færa henni fallega Míuboxið sitt. Með samþykki foreldranna ákváðum við þó að halda okkar striki og færa þeim Míuboxið hennar Jönu.
Við höfðum samband við þá aðila sem höfðu nú þegar sagt „já“ við að setja fallegar vörur í Míuboxið hennar og tóku allir ótrúlega vel í það að breyta aðeins gjöfinni sinni. Sumu vildi ég þó ekki breyta því Míuboxið var jú Míuboxið hennar Jönu.
Við gerðum Míuboxið hennar því að hennar en sömuleiðis fengu mamma & pabbi einnig vörur til að njóta sín & skottunnar sinnar. Heimsóknin til þeirra var ótrúlega mögnuð. Við vorum næstum fluttar inn hjá þeim. Við Rakel hefðum getað spjallað við þau enn lengur og var undirrituð mögulega orðin ansi heimakær og því flott mál að drífa sig heim.
Takk fyrir okkur elsku hjartans Vigdís Eir og Kristján. Þið eruð algjörlega mögnuð bæði tvö! Takk fyrir að segja okkur frá elsku Jönu Eir, takk fyrir að sýna okkur myndir af henni og takk fyrir að leyfa Míu að vera partur af ykkar vegferð!
Takk allir sem hjálpuðu okkur að gleðja elsku foreldra Jönu!
@eddautgafa @nola.is @dimmverslun @smatregunnars @omnomchocolate @urd_scents @hulan.is @miaverslun @hotel_ranga @heklaislandi @drhauschkaisland @folkreykjavik
Myndir: @rakeloskljosmyndari
xo, Þórunn Eva






