Vá hvað það var gaman að kynnast elsku Eygló Dís en við afhentum henni nóvember foreldra Míuboxið í dag fimmtudaginn 25. nóvember. Það vildi svo skemmtilega til að hún átti afmæli í dag. Eygló er ein sú allra yndislegasta. Við þorðum ekki inn svo við Fríða stóðum sitthvoru meginn á stigaganginum og Eygló Dís og Jóhann Dagur opnuðu Míuboxið og skoðuðu á meðan við vorum hjá þeim. Það er sko alltaf jafn gaman að sjá þegar Míuboxin eru opnuð.
Elska ekkert meira en heimilislegar heimsóknir. Takk fyrir að taka á móti okkur elsku Eygló Dís og aftur, innilega til lukku með daginn þinn.
Öllum sóttvarnarreglum var fylgt við úthlutun dagsins.
Takk allir sem tóku þátt í að gleðja Eygló Dís. Þau fyrirtæki sem tóku þátt í Míuboxi mánaðarins (Instagram nöfn fyrirtækjanna)
@hugrunheklaart @leirdis @hotelsouthcoast @termasnyrtivorur @eddautgafa @noelstuudios.is @asbjornolafs @omnomchocolate @betteryou_iceland @thebodyshopisland @arkaheilsuvorur @essei_heildverslun @agzustore @solrundiego @smatre.gunnars
Takk fyrir allt.
// Þórunn Eva og Fríða