Foreldrafélag Urriðaholtsskóla færði nemendum í 1. og 3. bekk bókina Mía lærir um sykursýki.
Bókin fræðir börn á einfaldan hátt um sykursýki af tegund 1 og hvernig það er að lifa með sykursýki. Hún hjálpar börnum að skilja betur hvað sykursýki felur í sér, svarar algengum spurningum og sýnir að börn með sykursýki eru alveg eins og önnur börn, þótt þau þurfi stundum að huga að öðrum hlutum í daglegu lífi. Markmiðið er að efla skilning, vináttu og umhyggju svo öll börn upplifi sig örugg og sem hluta af hópnum. Bækurnar verða einnig aðgengilegar á bókasafni Urriðaholtsskóla svo fleiri börn geti notið þeirra.
Takk elsku Kristín Avon fyrir að standa fyrir þessu frábæra framtaki! 🥰






