STYRKJA MÍU

Kt: 410221-1520
Bankaupplýsingar: 0537-26-006385
miamagic@miamagic.is

Mia Magic gefur langveikum börnum og foreldrum Míubox einu sinni í mánuði. Einnig er bókin Mía fær lyfjabrunn gefins fyrir öll börn sem þurfa á henni að halda. 

Í fyrstu var hún gefins fyrir öll börn sem þurftu á lyfjabrunni að halda en núna höfum við séð að bókin er líka að nýtast t.d börnum þar sem foreldrar þurfa að fá lyfjabrunn. Einnig nær heilbrigðistarfsfólk að nýta sér Míu til að ná að tengjast börnum með lyfjabrunn á annan hátt en áður.

Ef þú vilt styrkja félagið með fjárframlagi ert þú að stuðla að því að við getum t.d gefið út fleiri bækur og hjálpað enn fleiri börnum með bókunum um Míu.
 

Við erum bæði með Míubox fyrir börn 0-18 ára en einnig erum við með Míubox fyrir foreldra. Eins og það er yndislegt að gleðja gormana okkar þá eiga foreldrar langveikra barna það til að gleymast ansi oft í öllu þessu ferli sem það er að eiga langveik börn. 

Mía fer í Tívolí er næsta bók Þórunnar Evu og Bergrúnar Írisar. Þessi dásamlega fallega bók kemur út í lok sumars eða um leið og fjármagn næst til þess að prenta og gefa út bókina. 

Bókin er fræðslubók líkt og fyrri bókin um Míu, Mía fær lyfjabrunn. Hinsvegar er Mía fer í Tívolí talsvert ólík þeirri fyrri og fer meira inná þau ótal mörgu verkefni sem langveik og fötluð börn þurfa að tækla dag hvern með foreldrum sínum. 

Þessi saga er ekki bara saga heldur er tívolí ferðin hennar Míu skrifuð eftir atviki sem Þórunn Eva lenti í með son sinn fyrir nokkrum árum síðan með smá skáldskap hér og þar þó boðskapurinn sé eftir því atviki.

Jón Sverrir sonur Þórunnar Evu hjálpaði Bergrúnu Írisi við myndlýsingar á bókinni Mía fer í tívolí. Mikill heiður að fá að læra af þeirri bestu í faginu.aw

Kt: 410221-1520
Bankaupplýsingar: 0537-26-006385
miamagic@miamagic.is