Mía lærir um sykursýki

Mía lærir um sykursýki

Mía lærir um sykursýki er nýjasta bókin um okkar uppáhalds stelpu skottu, Míu. Bókin er sú fjórða í bókaröðinni um Míu og vini hennar.

Í þessari bók fylgjum við Míu í heimsókn til Teó vinar síns en hann var að greinast með sykursýki týpu 1. Mía hefur ótal spurningar og Teó sýnir henni hvernig hann setur á sig sykurnema og hvað hann geymir í töskunni sinni.

Hér er smá skjáskot af tveimur opnum úr bókinni. HÉR getur þú pantað bókina.

Mía einblýnir á að skrifa bækur fyrir börn sem eru þeim að kosntaðarlausu. Það er mjög valdeflandi fyrir barn að geta afhent vinum og ættingjum bók sem segir þeim allt um hvaða sjúkdóm þau eru t.d með eins og sykursýki af týpu 1.

Mía elskar að fræðast og með ykkar hjálp í gegnum árin hefur það svo sannarlega tekist. Ef þið viljið hjálpa okkur að halda áfram að skrifa bækur um Míu, endilega heitið á hlauparana okkar í maraþoninu HÉR.

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts