Mía lærir um sykursýki

kr.0

Mía lærir um sykursýki er fjórða bókin um dásamlegu Míu.
Bækurnar um Míu eru gjaldfrjálsar, fræðsla á ekki að stjórnast af efnahag foreldra.

Í þessari lærdómsríku bók um Míu fylgjum við henni í heimsókn til Teó vinar síns. Hann var að greinast með sykursýki af tegund 1. Mía hefur ótal spurningar og Teó sýnir henni hvernig hann setur á sig sykurnema og hvað hann geymir í töskunni sinni.

Þórunn Eva er sjúkraliði að mennt og móðir tveggja drengja. Hún skrifaði bókina um Míu eftir að annar sonur hennar fékk lyfjabrunn.

Bergrún Íris er barnabóka- höfundur og teiknari. Hún hefur myndlýst fjölda bóka sem glatt hafa börn um árabil. Teikningar Bergrúnar glæða sögu Þórunnar litríku lífi.

Áður hafa komið út bækurnar Mía fær lyfjabrunn og Mía fer í tívolí og Mía fer í blóðprufu sem hlotið hafa einróma lof lesenda á öllum aldri.

Availability: Á lager