Mía fer í blóðprufu
kr.0
Mía fer í blóðprufu er þriðja bókin um dásamlegu Míu.
Bækurnar um Míu eru gjaldfrjálsar, fræðsla á ekki að stjórnast af efnahag foreldra.
Mía fer í blóðprufu í þessari áhugaverðu og skemmtilegu bók. Hún er með margar spurningar og veltir til dæmis fyrir sér hvort hún sé með glimmer í blóðinu, hvort hún megi fara í búbblubað þegar hún kemur aftur heim og síðast en ekki síst fær hún að vita leyndarmál um blóðið í sér.
Þórunn Eva er sjúkraliði að mennt og móðir tveggja drengja. Hún skrifaði bókina um Míu eftir að annar sonur hennar fékk lyfjabrunn.
Bergrún Íris er barnabóka- höfundur og teiknari. Hún hefur myndlýst fjölda bóka sem glatt hafa börn um árabil. Teikningar Bergrúnar glæða sögu Þórunnar litríku lífi.
Áður hafa komið út bækurnar Mía fær lyfjabrunn og Mía fer í tívolí sem hlotið hafa einróma lof lesenda á öllum aldri.
Availability: Á lager




