Mía á afmæli
kr.0
Mía á afmæli er fimmta bókin um hina hugrökku Míu og vini hennar.
Bækurnar um Míu eru gjaldfrjálsar, fræðsla á ekki að stjórnast af efnahag foreldra.
Mía á afmæli er hugljúf og hjartnæm saga sem fjallar um gleði, sorg og stórar tilfinningar. Flóknar spurningar vakna hjá Míu og Nóa vini hennar. Er hægt að gráta og hlæja á sama tíma? Getur Ella vinkona haldið afmælisveislu á himnum og hver ætli afmælisóskin sé?
Þórunn Eva er sjúkraliði að mennt og móðir tveggja drengja. Hún skrifaði bókina um Míu eftir að annar sonur hennar fékk lyfjabrunn.
Bergrún Íris er barnabóka- höfundur og teiknari. Hún hefur myndlýst fjölda bóka sem glatt hafa börn um árabil. Teikningar Bergrúnar glæða sögu Þórunnar litríku lífi.
Áður hafa komið út bækurnar Mía fær lyfjabrunn, Mía fer í tívolí, Mía fer í blóðprufu og Mía lærir um sykursýki sem hlotið hafa einróma lof lesenda á öllum aldri.
Availability: Á lager




