Gjöf frá AGORA
Þær Pálína og Ester komu færandi hendi snemma í maí með peningagjöf að upphæð, 140.000 kr, fyrir starfið okkar hjá Mia Magic. Upphæðin safnaðist á fundi hjá AGORA 9 klúbbnum þeirra. Ég er alltaf jafn hissa þegar við fáum svona fallegar gjafir. Þessi upphæð fór beint í dásamlega verkefnið okkar á nýrri bók um Míu.







