Þær Pálína og Ester komu færandi hendi snemma í maí með peningagjöf að upphæð, 140.000 kr, fyrir starfið okkar hjá Mia Magic.
Upphæðin safnaðist á fundi hjá AGORA 9 klúbbnum þeirra.
Ég er alltaf jafn hissa þegar við fáum svona fallegar gjafir. Þessi upphæð fór beint í dásamlega verkefnið okkar á nýrri bók um Míu. Þessi upphæð var akkúrat það sem vantaði upp á til þess að koma bókinni á næsta stig.
Mía fer í blóðprufu er því komin í myndlýsingarferli þökk sé þessum dásamlega styrk frá AGORA 9.
Fyrsta myndin úr nýrri bók fær að fylgja með.





