Óli Hilm hannar Míuverðlaunin 2024

Óli Hilm hannar Míuverðlaunin 2024

Með stolti kynnum við listamanninn sem hannar Míuverðlaunin 2024. Óli Hilm er magnaður listamaður og vá hvað við erum stolt af því að hann sé tilbúinn að vinna með okkur í ár.

Ég heimsótti Óla um daginn á vinnustofuna hans, ég smá bað hann um að smíða eina vinnustofu fyrir mig líka, hún var fullkominn. Óli er nefnilega smiður í grunninn og lenti smá óvart í keramikinu, sem ég elska !

Óli er með vörurnar sínar í sölu t.d hjá Epal og inn á heimasíðunni sinni olihilm.com

Nýjasta stóra verkefni Óla var skemmtilegt verkefni fyrir Kvennatölt. Sérmerktir bollar með merki félagsins ! hversu sturlað flottir ! Núna langar mig í Míubolla !

Stal þessum myndum af INSTAGRAM hjá Óla. Mæli ó svo mikið með að fylgja honum, svo sturlað hæfileikaríkur.

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts