Anna Steinsen kynnir Míuverðlaunin 2025

Anna Steinsen kynnir Míuverðlaunin 2025

Það er með stolti sem við kynnum Önnu Steinsen sem kynni Míuverðlaunanna 2025.

„Míuverðlaunin eru árleg verðlaun til að heiðra þá sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Einhver sem hefur hjálpað eða stutt við þig og þína fjölskyldu á erfiðum tíma. Það sem þeim finnst vera “bara vinnan sín” getur skipt sköpum fyrir aðstandendur langveikra barna og börnin sjálf. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfstétt sem er, hvar á landinu sem er. Verðlaunin fara fram þann 14. október á sjálandi“.

Þetta er annað árið í röð sem Anna kynnir Míuverðlaunin fyrir okkur en hún gerði það einnig árið 2024 með framúrskarandi árangri.

Anna Steinsen er með BA gráðu í tómstunda- og félagsmálafræði. Síðastliðin 16 ár hefur Anna sérhæft sig í þjálfun á námskeiðum fyrir ungt fólk. Hún hefur unnið til fjölda verðlauna sem þjálfari á alþjóðavettvangi. Hún starfar sem fyrirlesari, þjálfari á námskeiðum, stjórnendamarkþjálfi, heilsumarkþjálfi og jógakennari. Þar á undan starfaði Anna í félagsmiðstöð sem tómstundaleiðbeinandi.

Í dag stundar Anna mastersnám í samskiptum og forvörnum hjá HÍ. Anna er gift og á fjögur börn og hund.

 – Anna hefur gefið út tvær barnabækur. Blómið og býflugan og Ofurhetja í einn dag. Allur ágóði bókarinnar Ofurhetjur í einn dag rann til UN Women.

 – Anna er einn af vinsælustu fyrirlesurum landsins og flytur hún að jafnaði 150-200 fyrirlestra á hverju ári.

 – Anna hefur hlotið alþjóðlegar viðurkenningar fyrir hæfni sína í þjálfun einstaklinga og starfsfólks fyrirtækja.

Myndir: Rakel Ósk Sigurðardóttir

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts