Ég vinn með ofurhetjum!

Ég vinn með ofurhetjum!

Ég er svo rosalega heppin að ég elska vinnuna mína. Ég fæ nefnilega að mæta á hverjum degi og hitta ofurhetjur. Margt í lífi mínu hefur verið röð tilviljana og það á einmitt við af hverju ég er hjúkrunarfræðingur á Barnaspítalnum.

Það var röð tilviljana að ég fór í hjúkrunarfræði til að byrja með. Ég var mjög ung þegar ég fann það að ég vildi vinna með fólki, hjálpa því á einhvern hátt. Ég vann á hjúkrunarheimili með menntaskólanum og líkaði mjög vel við það.  Það má segja að eftir samræður við móður mína þegar ég stóð  á tímamótum eftir stúdentinn þegar ég vildi vinna ár áður en ég færi í háskóla. Þá bað móðir mín mig um að velja starf sem gæfi mér reynslu fyrir háskólann. Ég gat bara ekki hugsað mér að hætta að vinna með gamla fólkinu og ákvað í kjölfarið að byrja í hjúkrunarfræði. Besta ráð sem ég hef fengið og besta ákvörðun sem ég hef tekið.

Það var líka tilviljun að ég réð mig til starfa á barnaspítalnum haustið 2018. Barnahjúkrun hafði aldrei verið ofarlega í huga mér frá því að ég var í náminu en mér þótti þetta spennandi áskorun. Ég sé svo alls ekki eftir því.

Flestir í kringum mig óskuðu mér góðs gengis og sögðu að ég væri að stefna í rétta átt en því miður voru nokkrir sem höfðu talsverðar skoðanir á þessari ákvörðun minni. Hvernig gæti ég hugsað mér að vilja vinna með veikum börnum? Vissi ég ekki hvað þetta gæti verið erfitt?

Auðvitað getur verið krefjandi að sinna veikum börnum og maður upplifir alveg erfið augnablik en aftur á móti eru þessi augnablik svo falleg og gefandi. Svona að auki held ég að það sé erfitt að vinna sem hjúkrunarfræðingur á sjúkrahúsi og upplifa aldrei erfið augnablik, það er bara hluti af starfinu.

Þegar ég var beðin um að skrifa um starf mitt sem hjúkrunarfræðingur á Barnaspítalanum voru það ekki erfiðu augnablikin sem komu fyrst í hugann heldur öll þau GLEÐI sem ég fæ að upplifa í starfinu. Það getur hljómað klisjukennt en börn eru svo mögnuð hvað það er alltaf stutt í gleðina hjá þeim þrátt fyrir erfið veikindi og erfiðleika. BÖRN ERU SVO MÖGNUÐ og ég fæ að upplifa það á hverju degi. Við fullorðna fólkið erum alltaf svo alvarleg og getum svo sannarlega lært mikið af börnunum. Mér finnst svo gaman að geta látið eins og kjáni í vinnunni og kallað fram bros og kátínu hjá börnunum, þá sérstaklega ef velheppnað grín kallar fram bros hjá unglingi.

Börn lifa í núinu, eru svo hrein og bein, heiðarleg og opin. Þau eru ekki endilega að velta sig fyrir einhverju sem er liðið. Þau fela líka ekki hlutina, ef þeim mislíkar eitthvað þá segja þau það bara. Aftur á móti ef þau segja eitthvað einlægt og fallegt við þig þá veistu að það kemur frá dýpstu hjartarrótum.

Börn eru nefnilega eins ólíkir einstaklingar og þau eru mörg. Börn eru nefnilega frá 0-18 ára. Það gerir starfið mitt svo ótrúlega áhugavert. Mikilvægast er að mæta börnum á þeim stað sem þau eru stödd hverju sinni. Með ungabörn skipta samskipti við foreldra mestu máli en síðan þegar börn þroskast og eldast þá fer maður að beina samskiptum í meira mæli til barnanna sjálfra, auðvitað eru foreldrar með í ráðum líka. Maður þarf að upplýsa börn og útskýra hvað sé í gangi á þann hátt sem þau skilja. Þau verða að vera upplýst miðað við þroska þeirra. Maður metur aldur þess og þroska hvernig maður orðar hlutina og hvað þau verða að vita mikið. Sum orð geta nefnilega valdið talsverðum ótta hjá ungu barninu svo þetta er fín lína á milli þessa að segja nóg án þess að hræða.

Það getur nefnilega verið kvíðavaldandi að þurfa að leggjast inn á sjúkrahús. Börn eru oft hrædd og kvíðin því þau þekkja ekki umhverfið og þurfa oft að upplifa óþægindi. Maður gerir nánast ALLT til að auðvelda þeim þá upplifun. Starfið mitt býður upp á að nota ímyndaaflið. Ég nota mikið hugtök úr ævintýraheimum til að gera hluti ekki eins ógnveikjandi í eyrum barna. T.d. hjá mér notum við töfraplástra, skoðum ofurhetjublóð og tökum prinsessuprufur. Ég er samt oft agndofa hversu dugleg börnin eru. Ég hitti nefnilega ofurhetjur á hverjum degi í vinnunni. Það að koma á barnaspítalann og þurfa upplifa skrítna og jafnvel erfiða hluti þarfnast hugrekki og kjark þó maður sé hræddur.

Barnaspítalinn er æðislegur staður. Hér vinna allir að sama markmiði en það er að börnunum líði sem best. Það vilja allir gleðja börnin. Það er svo gaman að fá að vera hluti af þessari gleði. Við brjótum um hversdagsleikann með því að gera dagamun á hátíðar- og tyllidögum, klæða sig upp á öskudaginn, skreyta á Halloween og senda börn með súkkulaði egg á páskunum.  Ég elska að dekra við börnin mín. Þegar börn segja að þau sakni þess að koma á barnaspítalann eða vilja ekki fara heim, þá veit ég að við erum að gera eitthvað rétt.

Það sem er samt allra best og mest gefandi við starfið er að horfa á börn og foreldra takast á við erfið veikindi í sameiningu og ná bata. Það er algjörlega kjarni starfsins og ekkert sem kemst nálægt því.

– Sigrún María Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur á Barnaspítala Hringsins.

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts