Halldóra Kristín Þórarinsdóttir hlaut Míuverðlaunin 2023

Halldóra Kristín Þórarinsdóttir hlaut Míuverðlaunin 2023

Míuverðlaunin voru afhent í fjórða sinn í kvöld við hátíðlega athöfn á Spritz Venue, Reykjavík. Tíu heilbrigðisstarfsmenn sem vinna með langveikum börnum voru heiðraðir á viðburðinum. 

„Míuverðlaunin eru verðlaun til að heiðra þá sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Einhver sem hefur hjálpað eða stutt við þig og þína fjölskyldu á erfiðum tíma. Það sem þeim finnst vera „bara vinnan sín“ getur skipt sköpum fyrir aðstandendur langveikra barna og börnin sjálf. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfsstétt sem er, hvar á landinu sem er,“ segir í tilkynningu um verðlaunin. 

36 heilbrigðisstarfsmenn voru tilnefndir í ár.  Ísbjörninn Hringur fékk tilnefningu sem okkur finnst dásamlegt. Valnefnd Míuverðlaunanna valdi svo topp 10 hópinn sem mættur var á Spritz Venue nú í kvöld. Hópurinn var heiðraður á fallegum viðburði sem haldin var af Mia Magic, sem er góðgerðarfélagið sem stendur á bakvið þessi fallegu og einstöku verðlaun. Dimm verslun er aðalstyrktaraðili verðlaunanna í ár.

Andrúmsloftið var einstakt á viðburðinum, gleðin í andlitum viðstaddra var mögnuð. Halldóra Kristín Þórarinsdóttir, sérfræðingur í krabbameins – og blóðlækningum barna á Barnaspítala Hringsins, hlaut Míuverðlaunin að þessu sinni.  

Erna Hrund Hermannsdóttir, vörumerkjastjóri hjá Danól, afhenti Míuverðlaunin. Kynnar voru þau Gauti Þeyr og Apríl Lea dóttir hans. Míuverðlaunin í ár voru hönnuð af listakonunni Valdísi Ólafsdóttur sem hannar undir vörumerkinu litlu hlutir lífsins. Fallega orðið “hugrekki” sem hefur verið einkennisorð Mia Magic og er tekið úr fyrstu bókinni, Mía fær lyfjabrunn, var ritað á gripinn ásamt því að stærð lyfjabrunnar var sett í gripinn.

Halldóra ólst upp á stóru heimili þar sem eldri ættingjar gáfu yngri kynslóðinni bæði tíma og góð ráð. Halldóra lærði fljótt hversu mikilvægt það væri að hlúa að heilsunni en hún ákvað 10 ára gömul að verða læknir í framtíðinni og að hún myndi eignast tvíbura, bæði gekk eftir.

Halldóra útskrifaðist sem sem-dux scholea frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1988 og útskrifaðist úr læknisfræðideild HÍ 1994. Hún vann í 1 ár á ýmsum deildum Landspítalans áður en hún fékk almennt læknisleyfi hérlendis. Halldóra hélt síðan út til Bandaríkjanna 2000 þar sem hún útskrifaðist sem almennur barnalæknir 3 árum síðar. Á meðan hún var í þessu námi ákvað hún að læra krabbameinslækningar barna og útskrifaðist krabbameins- og blóðsjúkdómalæknir barna árið 2006. Hún kom þá heim og hóf störf á barnaspítala hringsins og starfar enn þar í dag.

Á síðustu árum hefur hún einnig tekið þátt í setja á laggirnar Miðstöð síðbúinna afleiðinga krabbameina fyrir fólk sem læknaðist af krabbameini í æsku og sem fylgja þarf eftir með t.d forvörnum og fræðislu. Hún er í alþjóðasamtökum barnakrabbameinslækna og einnig í samtökum norræna barnakrabbameinslækna.

Gjafa pokarnir voru styrktir af Húrra Reykjavík, Danól, Skjaldböku heildverslun og svo fengu allir Míunælu til að bera. Míu nælan er orðin svo stór hluti að heilbrigðiskerfinu og er ó svo gaman að heyra sögurnar sem fólk hefur að segja um þær. Í stuttu máli, það líður fólki öruggu þegar það sér starfsmann með Míunælu og sama á við með míu tengdan varning eins og hálsböndin og korta haldarana. Fullorðin kona á leið í blóðprufu sá t.d starfsmann sem sinnti henni ekki einu sinni með Míu hálsband og fylltist hlýju.

Míuverðlaunin eru hluti af félagi sem ber nafnið Mia Magic og er stofnað af Þórunni Evu G. Pálsdóttur eftir að hún gaf út bókina Mía fær Lyfjabrunn. Fríða Björk Arnardóttir, framkvæmdarstjóri Neistans, félags hjartveikra barna stofnaði verðlaunin með Þórunni Evu árið 2021.

Allar myndir eru teknar af hinni frábæru Rakel Ósk Sigurðardóttur, ljósmyndara.

Newsletter

Subscribe to our newsletter and join our  subscribers.

Related Posts