Þakklæti sem býr innra með okkur Fríðu er eitthvað sem er ekki hægt að lýsa með orðum. Algjörlega draumi líkast að þetta sé orðið að veruleika. Nr 1 að fá þetta rými í Íshúsinu, dásamlegt með öllu. Að við séum komnar með rými til að geyma allt og hittast þegar við getum er fullkomið.
Nr 2 að Soffía skyldi koma og hjálpa okkur með þetta er dream come true. TAKK elsku Soffía og allir hennar hjálparsveinar. Það að fá að vinna með fólki sem hefur sömu ástríðu fyrir því sem það er að gera og maður sjálfur er mögnuð upplifun. Takk Soffía fyrir að vera alvöru kona. Þú ert algjör fagmaður/kona fram í fingurgóma.
En svo við snúum okkur að rýminu sjálfu þá langar mig fyrst til að sýna ykkur smá fyrir og eftir myndir. Myndirnar hér sem koma fram í þessari færslu eru mix frá mér og Soffíu.
Ertu búinn að sjá þáttinn sem tekinn var upp í kringum þetta dásamlega styrktarverkefni? Hér að neðan er flipi sem hægt er að smella á og horfa á allt saman. Að allir hafi verð boðnir og búnir við fyrsta kall er algjörlega ómetanlegt. Við Fríða gerum allt í sjálfboðavinnu sem tengist Míu og allir þeir sem koma að þessu verkefni okkar á einn eða annan hátt gera slíkt hið sama.
Finnst ykkur ekki magnað hvað þetta er orðið þekkt og stórt miðað við að allir gefi vinnuna sína? ég á bara ekki til eitt aukatekið orð. Ég er algjörlega orðlaus með öllu.
Hér að neðan er myndasafn sem gaman er að rúlla í gegnum og skoða, takk allir sem tóku þátt í þessu með okkur og Soffíu. Takk allir styrktaraðilar og takk fyrir að trúa á okkur og það sem við erum að gera. TAKK.
– Dorma – Rúmfatalagerinn – BYKO – Slippfélagið – Skreytum Hús – Velmerkt.is – Húsgagnahöllin –




