1000 Míu bangar á leiðinni

1000 Míu bangar á leiðinni

Við höfum fengið staðfestingu á því að 1.000 Míu bangsar eru á leiðinni til okkar. Sendingin fer í skip 25. mars og er það allt ykkur að þakka. Það er svo gaman að fá myndir frá verksmiðjunni. Svo faglegt allt og flott. Deili hér með ykkur myndum frá þeim.

Vissuð þið að kinnarnar á Míu böngsunum (bleiki liturinn) er handmálaður á þær. Elska þessi smáatriði. Einnig er nýr miði á þeim. Þær komu ekki með miða að utan í fyrsta upplagi og eyddi ég ásamt fríðu föruneyti dágóðum tíma í að hengja á alla Míubangsana miða.

Allt klárt að utan í þetta sinn. Takk allir sem hjálpuðu okkur að láta þetta verða að veruleika. Hlakka til að deila fréttum af heimkomunni þeirra.

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts