40 börn í jólaklippingu með Míu

40 börn í jólaklippingu með Míu

Picture of Sólveig Jónsdóttir

Sólveig Jónsdóttir

Jólin eru handan við hornið og eftirvæntingin leynir sér ekki, sérstaklega á meðal barnanna. Fyrir börn með sjaldgæfa og alvarlega sjúkdóma og fjölskyldur þeirra geta jólin verið allskonar. Tíðar læknaheimsóknir, innlagnir og meðferðir eru hluti af lífinu, líka yfir hátíðarnar. Þá skiptir allur stuðningur og hvatning miklu máli. 

Í nóvember barst Míu Magic einstaklega fallegur og rausnarlegur styrkur frá Rebekkustúku nr. 4, Sigríði, sem tilheyrir Oddfellow-reglunni. 
„Tilgangur Míu Magic er fyrst og fremst að létta undir með foreldrum og fjölskyldum langveikra barna, gleðja og gera hversdagsleikann viðráðanlegri því langvinn veikindi hafa áhrif á alla fjölskylduna. Í aðdraganda jólanna vildum við nýta þennan góða stuðning frá Rebekkustúkunni og bjóða okkar fólki að fara með börnin í jólaklippingu hjá Heiðrúnu og hennar frábæra fólki á Grænu stofunni,“ segir Þórunn Eva G. Pálsdóttir, stofnandi Mía Magic en alls fengu 40 kátir krakkar jólaklippinguna með aðstoð Míu. 

Framtakið mæltist afar vel fyrir því eins og ein móðir komst að orði er oft ekki pláss í höfðinu til að hugsa um þess hluti í jólastressi með langveikt barn.

Iðunn Hrefna var ekkert endilega á því að fara í klippingu þegar hún mætti með Guðlaugu Ingibjörgu mömmu sinni, en sættist að lokum á að láta á það reyna enda var Míudúkkan klár á Grænu stofunni til að taka á móti henni. 
„Hún vildi alls ekki láta klippa sig en sættist loks á það og var svo glöð. Henni bauðst að fá fléttur í lokin og þá vildi hún sko fá tvær fléttur og sat grafkyrr allan tímann. Sagðist síðan vera orðin pæja og „búin í pikklingu“ með Míu og söng Let it Go það sem eftir lifði dagsins,“ segir Guðlaug Ingibjörg. 

 

 Iðunn Hrefna

Heiðrún Birna Rúnarsdóttir er eigandi Grænu stofunnar. Hún segir það hafa verið dásamlegt að fá að taka þátt í þessu fallega verkefni. 
„Þau eru að vinna virkilega einstakt og mikilvægt starf og hafa á svo margvíslegan hátt létt undir með fjölskyldum langveikra barna, bæði með hlýju og stuðningi. Þegar þau höfðu samband og spurðu hvort hægt væri að láta þetta verkefni verða að veruleika, þurfti ég ekki að hugsa mig tvisvar um. Mía situr svo í sófanum á biðstofunni hjá okkur og tekur á móti krökkunum. Okkur þykir svo vænt um hana og allt sem henni fylgir. Þessar heimsóknir hafa snert okkur djúpt og minna okkur á hvað jólin snúast raunverulega um. Við erum afar þakklát fyrir að fá að vera hluti af þessu fallega verkefni.“

Tvíburabræðurnir Loki Þór & Ýmir Þór.

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts