Afi & Ljós afhenda Míuverðlaunin í ár

Afi & Ljós afhenda Míuverðlaunin í ár

Við erum svo ótrúlega spennt að deila með ykkur þeim fréttum að Afi & Ljós frá Trúðavaktinni afhenda Míuverðlaunin í ár.

Við gætum hreinlega ekki beðið um flottara dúó til að afhenda þau fyrir okkur. Óli Hilm hannar verðlaunin í ár og það er alveg smá tenging við verðlaunagripinn og Trúðavaktina sem er ótrúlega skemmtileg tilviljun. Míuverðlaunin fara fram á Mengi, Óðinsgötu 2 þann 12.09.2024.

„Trúðavaktin, íslensku sjúkrahústrúðarnir, eru fyrstir sinnar tegundar á Íslandi. Vaktina skipa níu fagmenntaðir leikarar sem hafa hlotið sérstaka þjálfun í starfi sjúkrahústrúða. Trúðavaktin býður ókeypis þjónustu fyrir Barnaspítala Hringsins og hóf starfsemi sína þann 1. mars 2018. Trúðarnir heimsækja öll börn frá 0-18 ára á spítalanum, alla fimmtudaga, allt árið um kring, tveir trúðar í senn. Hlutverk Trúðavaktarinnar er að skapa stuttar gleðistundir í erfiðum aðstæðum“.

Sjúkrahústrúðarnir bjóða ókeypis þjónustu fyrir Barnaspítala Hringsins. 

Trúðavaktin heimsækir spítalan einu sinni í viku, tveir trúðar í senn. Það er markmið Trúðavaktarinnar að Barnaspítali Hringsins muni aldrei bera neinn kostnað eða koma að fjármögnun Trúðavaktarinnar.

Myndir fengar af vef Trúðarvaktarinnar og Facebook síðu LSH.

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts