Vá vá vá hvað var dásamlegt að hafa Fosshótel með okkur í liði í þessari Míuboxa ferð austur á firði. Það var dekrað við okkur bæði á Fosshótel Austfjörðum, Fáskrúðsfirði og Fosshótel Glacier Lagoon ! Við skiptum þessari færslu í tvo kafla. Fyrst Hótel Austfirðir, næst á eftir Hótel Glacier Lagoon.
Gamli franski spítalinn
Vissuð þið að það er safn á Hótelinu á Fáskrúðsfirði?? Sagan er mjög merkileg og gaman er að skoða safnið. Það var ekki búið að opna það þegar við vorum þar en við náðum að sjá aðeins og VÁ ! svo mikið vá að ég googlaði og fann t.d þessa grein hér: GAMLI SPÍTALINN
Við, Rakel Ósk, ljósmyndari Mia Magic, vorum svo spenntar að leggjast á koddann þetta kvöld. Enda var lagt af stað frá Rvk kl 8 að morgni, stoppuðum með þrjú Míubox á leiðinni austur og var tékk inn á Fosshótel Austjörðum kl 22:58.
Við vöknuðum í dásamlega fallegu veðri, herbergin voru guðdómleg og morgunmaturinn upp á 10! Ég er að hugsa um að fá mér veggfóður í hjónaherbergið hér heima eftir dvölina.
Myndirnar tala sínu máli hér að neðan og hei, eru þið að sjá hvað Kia Mían er sææææææt???
Eftir tvö Míubox á Egilsstöðum brunuðum við heim á leið. Við ákváðum þó að vera skynsamar og skipta heimferðinni upp og næla okkur í góðan nætursvefn og halda svo áfram daginn eftir.
Klukkan 20:48 tékkuðum við okkur inn á Hótel Glacier Lagoon sem var svo önnur algjörlega mögnuð upplifun.
Að vakna í sveitinni en samt á lúxushóteli var upplifun sem ég gæti ó svo mikið vanist. Ég er alltaf að átta mig betur og betur á því að ég er meiri prinsessa en ég hélt. Sveitalubbinn ég er líka með prinsessustæla!
OMG hvað ég elskaði að sofna í sveitinni, vakna í sveitinni en samt í dúnamjúku rúmi, með dásamlegan kodda og sæng sem ég týndist í. Morgunmaturinn var upp á 10 líkt og á Fosshótel Austfjörðum. Aftur, TAKK fyrir að hjálpa okkur með svefnstaði í Míubox ferðinni okkar. Svo mikill léttir að vita að svefnstaðir eru 100% alla ferðina. TAKK !
Ljósmyndir eru eftir Rakel Ósk Sigurðardóttur.
Takk enn og aftur elsku Fosshótel
xo Þórunn Eva




