Ljósið prjónaði fyrir Mia Magic

Ljósið prjónaði fyrir Mia Magic

Ó hversu mikill heiður.

Þegar Louisa, iðjuþjálfi hjá Ljósinu, hringdi í mig og sagði mér að prjónahópur Ljóssins hafi ákveðið að næsta samfélagsverkefni væri að prjóna Míupeysur, þá fékk ég gæsahúð. Þegar svona stórt og öflugt félag sér litla fallega Mia Magic félagið okkar, þá er ekki hægt að lýsa því hversu hlýtt í hjartað það er.

Við fórum í gær, 25.júní 2025 og heimsóttum Ljósið. Þar voru Ljósberar að prjóna Míupeysur og fleira fallegt. Við fengum að taka myndir til að sýna ykkur, Rakel Ósk, ljósmyndari fór því með mér í heimsókn.

Svo fallegt að vinna svona saman að sama markmiði, gleðja mögnuðu börnin. Elska það!
Takk Ljósið fyrir að hjálpa okkur að gleðja öll Míu börnin sem njóta góðs af fallega starfinu ykkar.

Þórunn Eva

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts