Í fyrsta sinn verður foreldri með erindi á Míuverðlaununum. Guðlaug Ingibjörg Þorsteinsdóttir aka Gulla ætlar að snerta á aðkomu Míu í gegnum veg fjölskyldunnar í gegnum krefjandi tíma í lífi þeirra.
„Míuverðlaunin eru árleg verðlaun til að heiðra þá sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Einhver sem hefur hjálpað eða stutt við þig og þína fjölskyldu á erfiðum tíma. Það sem þeim finnst vera “bara vinnan sín” getur skipt sköpum fyrir aðstandendur langveikra barna og börnin sjálf. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfstétt sem er, hvar á landinu sem er. Verðlaunin fara fram þann 14. október á sjálandi“.
Guðlaug er tveggja barna móðir, fædd og uppalin á Blönduósi. Hún gekk í Verkmenntaskólann á Akureyri og lék íshokkí með Skautafélagi Akureyrar þangað til leiðin lá suður þar sem við tók nám í íþróttafræðum við Háskólann í Reykjavík.
Hún útskrifaðist þaðan 2016. Í framhaldinu bætti hún við sig meistaranámi í lýðheilsuvísindum í Háskóla Íslands og kennsluréttindum. Mestan hluta starfsferilsins hefur hún unnið ýmist við fræðslu og kennslu, allt frá ungbarnakennslu í þjálfun eldriborgara. Hún starfaði um tíma í Geðheilsuteymum Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins en einbeitir sér nú að íþróttakennslu í grunnskólabarna. Samhliða því er hún í stjórn Íshokkísambands Íslands og sinnir dómgæslu í íþróttinni.
Gulla hefur komið að mörgum þróunarverkefnum en hún hefur meðal annars unnið að þróunn sundkennslu leikskólabarna. Haustið 2024 greindist eldra barn hennar með hvítblæði en að koma Míu að sjúkdóm sonar hennar hefur greitt veg fjölskyldunnar í gegnum krefjandi tíma í meðferðinni.
Myndir: Rakel Ósk Sigurðardóttir






