Unnur Pálmadóttir og teymið hennar hjá Skapandi leiddu skipulag Míuverðlaunanna í ár. Kunnum við þeim miklar þakkir fyrir. Faglegri viðburðastofa er vanfundin, fyrir utan hvað þær eru dásamlega skemmtilegar og skipulagðar þá er sérlega gott að vinna með þeim. Allt eins og smurð vél þegar kemur að teymi Skapandi. Vandamál eru ekki til í þeirra orðabók, einungis verkefni sem þarf að leysa og því er upplifunin ávallt góð þótt hlutirnir breytist aðeins á leiðinni. Allt eins og það á að vera ! Ekkert stress á viðburðardegi sem er nákvæmlega eins og allir viðburðardagar ættu að vera !
Luna Studio, sá um að gera viðburðinn einstaklega draumkenndan með fallegum blómum & kunnum við elsku Dísu ó svo miklar þakkiar fyrir !
Sjáland sá um að við höfum fallegan sal & veitingar upp á 10. Exton kom og græjaði fallega og notalega lýsingu og sá um að Erna Hrönn hefði bestu mögulega hljóðgæðin meðan hún flutti okkur ó svo falleg lög.







