Eitthvað kviknaði í huga Úlfars Konráðs Svanssonar fyrir nokkrum árum þegar hann sá myndbönd af fótboltamönnum og leikurum heimsækja börn á spítala og gleðja þau með gjöfum og spjalli. Það að hann væri hvorki að spila í ensku deildinni né heimsfrægur Hollywood leikari stoppaði hann hins vegar ekki í að fylgja hjartanu og finna leiðir til að gleðja langveik börn og foreldra þeirra og láta gott af sér leiða.
„Það sem sat svo í mér eftir að ég sá þessi myndbönd af spítalaheimsóknunum var hvað þetta var falleg hugmynd og gott framtak, gefandi og skemmtilegt fyrir alla svo ég fór að hugsa hvað ég gæti mögulegt gert sjálfur til að gleðja börn sem væru að glíma við erfið veikindi. Ég á ekki sjálfur persónulega reynslu af alvarlegum veikindum og það eru engin börn í fjölskyldunni sem glíma við langvinn veikindi en dóttir okkar þurfti að dvelja á vökudeild í nokkra daga þegar hún kom í heiminn. Þá fann ég svo ótrúlega sterkt hvað við eigum flott heilbrigðisstarfsfólk og hvað öll þessi vinna og hlýja skiptir miklu máli. Þannig að hvatinn minn var fyrst og fremst þessi mikla þörf fyrir að ná að leggja mitt af mörkum á einhvern hátt. Upp úr þessu byrjuðum við, ég og æskuvinur minn Dagur, að skrifa bækur um íslenskar ofurhetjur. Bækurnar heita Landverðir og fjalla um ofurhetjurnar Atlas og Avion og alveg frá upphafði var það okkar markmið með bókunum að gleðja börn og styrkja Barnaspítalann. Við sáum mjög snemma í ferlinu að við þyrftum einhvern góðan teiknimyndasöguteiknara með okkur og fengum mjög færan teiknara sem heitir Fannar til liðs við okkur. Ég er mjög stoltur af útkomunni og við gáfum á endanum út tvær bækur og eina lita- og þrautabók. Söluhagnaðurinn af bókunum fór til Barnaspítala Hringsins, fyrst í formi peningagjafar en svo ákváðum við í samráði við þau að kaupa það sem vantaði fyrir krakkana fyrir ágóðann af bókasölunni. Við keyptum leikföng, playstation-tölvu og fleira og mættum svo uppeftir í ofurhetjubúningum til að afhenda gjafirnar og heilsa upp á þau. Heimsóknirnar voru ótrúlega skemmtilegar en á covid-tímanum mættum við líka í búningunum í garðinn fyrir framan Barnaspítalann og heilsuðum upp á krakkana þaðan. Það var ótrúlega gaman og það er bara svo góð tilfinning að láta gott af sér leiða,“ útskýrir Úlfar.
Lífið tók við og allt fór á fullt, fjölskyldan stækkaði og eftir að hafa menntað sig í markaðsmálum og byrjað að starfa í þeim bransa rakst Úlfar á Míu Magic. Hann segir að þar hafi hann fundið vettvang þar sem hann gat haldið áfram að leggja sitt af mörkum þó svo að Landvarðabækurnar yrðu ekki fleiri að sinni og leitaði því allra leiða til að hjálpa til. „Ég varð strax stórhrifinn af því sem Þórunn hjá Mía Magic er að gera og í kjölfarið hjálpuðum fórum við að gefa ýmsar gjafir og hluti í Míuboxin, bæði fyrir börn og foreldra. Ég var að vinna fyrir Artasan sem er með umboð fyrir vítamín í munnúðaformi sem áttu vel heima í þessum boxum. Þannig hófst okkar samstarf og Þórunn kom svo með þá hugmynd að við færum saman að afhenda boxin. Ég var meira en til í það og dró aftur fram ofurhetjugallann og við fórum saman að afhenda þessa glaðninga sem var ótrúlega skemmtilegt. Að hitta börnin og sjá gleðina þeirra þegar þau opna boxin og virða fyrir sér allt sem er í þeim. Ég hafði séð myndir frá því þegar verið er að afhenda boxin en það var einhvern veginn allt annað að fá að vera með og á staðnum. Fá þetta beint í æð.“
En hvað er það sem fær venjulegt fólk til að staldra við í amstri dagsins og leita leiða til að gleðja langveik börn og fjölskyldur þeirra? „Ég hef það mjög gott í lífinu og er mjög meðvitaður um það. Það er eitthvað við það að hafa vettvang til að hjálpa til, gleðja og styðja sem gerir það að verkum að þú kemur út í stórum andlegum plús og það sem skiptir svo miklu máli. Þórunn er algjör rokkstjarna og það er frábært að fá að taka þátt í því sem hún er að gera, en allt það sem hún leggur í Míu Magic er einfaldlega alveg einstakt. Hún sér þetta allt svo fallega, þekkir þennan heim auðvitað á eigin skinni og hugsar hlutina út frá svo réttum forsendum. Bækurnar um Míu eru líka svo ótrúlega mikilvægt fræðsluefni. Við lesum og skoðum þær heima þrátt fyrir að í kringum okkur séu engin alvarleg veikindi en þetta skiptir miklu máli að geta skoðað svörum við eðlilegum spurningum sem börn hafa og í kjölfarið búa til aðstæður fyrir umburðarlyndi og skilning. Það er ekki til sambærilegt fræðsluefni fyrir börn á íslensku svo þetta er mjög þarft og mikilvægt.“
Úlfar hefur haldið áfram að taka virkan þátt í starfi Miu Magic á fjölmörgum sviðum en ásamt því að gefa vörur í Míuboxin með aðstoð þeirra vörumerkja sem hann hefur verið markaðsstjóri fyrir, hefur hann einnig hjálpað til við framkvæmd og skipulagningu Míu verðlaunanna. „Míuverðlaunin eru árleg verðlaun þar sem læknar og heilbrigðisstarfsfólk, foreldrar og börn koma saman og eiga hátíðlega stund með góðum mat, skemmtiatriðum og verðlaunaafhendingu. Foreldrar geta sent inn tilnefningu fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem hefur reynst þeim einstaklega vel og ég hef fengið að vera dómari í verðlaununum. Í því felst að fara yfir tilnefningarnar út frá ákveðnum fyrirfram gefnum þáttum og þetta er allt mjög vel og faglega upp sett. Markmiðið er að veita viðurkenningu fyrir sérstaklega vel unnin störf út frá sjónarhorni foreldra langveikra barna. Heilbrigðisstarfsfólk er jú að sinna sinni vinnu en þau eru svo ótal mörg sem hafa líka í sér að gera þetta „extra“ vel, fylgja fólki sérstaklega vel eftir og vera svo rík af þessari mannlegu samkennd sem er mikilvæg á erfiðum stundum. Aftur, þá er þetta svo fallegt og flott framtak sem er gaman að vera hluti af.“

Auk þess hefur Úlfar hlaupið fyrir Míu í Reykjavíkurmaraþoninu, ásamt móður sinni, undanfarin ár og þar verður engin breyting á. „Nema að núna ætla ég að gefa í þegar kemur að vegalengdinni. Ég hef alltaf hlaupið 10 kílómetrana með mömmu, hún er mikill skokkari og við höfum verið að stefna saman á að fara hálfmaraþonið. Ætli þetta verði ekki árið sem við látum vaða?“
Viltu hlaupa fyrir Mia Magic í Reykjavíkur maraþoninu? Skráðu þig hér
Sólveig Jónsdóttir
er stjórnmálafræðingur og rithöfundur sem hefur starfað sem blaðamaður og pistlahöfundur um árabil auk þess að vinna við markaðsmál, hugmyndavinnu og textagerð fyrir fjölmörg almannaheillafélög. Hún hefur mikla reynslu af því að tala við ólíkt fólk, oft einstaklinga í flókinni stöðu, og nálgast viðfangs- og umfjöllunarefni af vandvirkni og virðingu.




