Við fögnum fjórðu Míubókinni!

Við fögnum fjórðu Míubókinni!

Fyrr í vikunni var mikill gleðidagur hjá okkur í Mia Magic en þá fögnuðum við útgáfu fjórðu bókarinnar okkar þar sem okkar allra besta Mía er í aðalhlutverki. Að þessu sinni lærir hún um sykursýki.

Míubækurnar eru þungamiðjan í okkar starfi en þær hafa reynst mörgum ótrúlega vel, bæði börnum sem eru langveik og þurfa að fara í reglulegar læknisheimsóknir og rannsóknir en það hefur líka glatt okkur mikið að heyra að bókin Mía fer í blóðprufu hafi komið sterk inn hjá börnum (og foreldrum!) þegar um um einangruð tilvik er að ræða. Mikilvægi þess að skoða, ræða og fræða skiptir máli í öllu aðstæðum. Foreldrar, umönnunaraðilar, kennarar og margir fleiri hafa talað um að Míubækurnar hafi komið að góðum notum því það getur líka verið gott að skoða málið út frá sjónarhorni okkar glöðu og góðu Míu sem nálgast hlutina á forsendum barnsins, sem svo auðvelt er að tengja við, og síðast en ekki síst með hugrekkið að leiðarljósi.

Míubækurnar eru nú orðnar fjórar talsins og í nýju bókinni, Mía lærir um sykursýki, fylgjum við stelpunni okkar í heimsókn til Teó vinar síns sem var að greinast með sykursýki af tegund 1. Mía er eðlilega með ótal spurningar þessu tengt og Teó sýnir henni hvernig hann setur á sig sykurnema og hvað hann geymir í töskunni sinni.

Þið munið kannski eftir Hófí, kraftmiklu litlu konunni okkar frá Ísafirði en Tanja mamma hennar var í einu af Míuviðtölunum okkar fyrr á þessu ári. Hófí var himinlifandi með nýju Míubókina og fór í góðan leiðangur með mömmu sinni þar sem þær gáfu bókina á allar deildir sjúkrahússins á Ísafirði, í leikskólana og grunnskólann og fengu far fyrir bækur til að þær bærust í leikskólann á Bolungavík. Það var falleg stund þegar Hófí mætti með nýju Míubókina á leikskólann sinn þegar einn vinur hennar var frá sér numinn af gleði og mætti henni með orðunum: „Hvað ertu með Hófí?!“ Sérkennslustjórinn var ekki síður spenntur og sagði að þau yrðu að lesa bókina strax í dag, sem allir voru mjög ánægðir með.

Fræðsla er forsenda þess að við getum sett okkur í spor annarra og þannig veitt og sótt okkur stuðning þegar lífsverkefnin verða krefjandi. Þar koma Míubækurnar sterkar inn og við erum ótrúlega stolt og glöð að nú sé fjórða bókin komin í heiminn.

Picture of Sólveig Jónsdóttir

Sólveig Jónsdóttir

er stjórnmálafræðingur og rithöfundur sem hefur starfað sem blaðamaður og pistlahöfundur um árabil auk þess að vinna við markaðsmál, hugmyndavinnu og textagerð fyrir fjölmörg almannaheillafélög. Hún hefur mikla reynslu af því að tala við ólíkt fólk, oft einstaklinga í flókinni stöðu, og nálgast viðfangs- og umfjöllunarefni af vandvirkni og virðingu.

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts