Hlátur og grátur og allt þar á milli.
“Ég gæti aldrei unnið við að gera það sem þú gerir”, eru oftast viðbrögðin sem ég fæ þegar ég segist starfa sem hjúkrunarfræðingur á barnadeildinni. Það að vinna á legudeild Barnaspítala Hringsins krefst jú ákveðinna persónueinkenna, t.d. hlýju, þrautseigju, gæsku, samkenndar og styrks, en krefst þess einnig að maður læri að taka hlutunum ekkert of alvarlega, að koma auga á það jákvæða og taka einn dag í einu.

Börnin búa nefnilega ennþá yfir þessum frábæru kostum, auk þess sem þau eru ekki að flækja lífið of mikið, en einhverstaðar á lífsleiðinni töpum við þessum eiginleika, eða, okkur er kennt að bæla hann niður þegar alvara lífsins tekur við. Börn búa einnig yfir einhverjum yfirnáttúrulegum krafti, þrautseigju og aðlögunarhæfni sem er aðdáunarverð, og það er heiður að fá að vera vitni af þeim taka þessa eiginleika og nýta þá í þau erfiðu verkefni sem þeim er fært.
Það að horfa á þau gefa foreldrum sínum styrk, með sínu fallega æðruleysi, hvetur mig áfram til að tileinka mér sjálfri þessa eiginleika og reyna að nýta þá eftir minni bestu getu á fullorðinsárunum.
Á barnadeild leggjast inn börn, á aldrinum 0-18 ára, og inn á deildina fáumst við margvísleg verkefni. Allt frá öndunarfærasýkingum, upp í fjöláverka og krabbamein, og þurfa hjúkrunarfræðingar á barnadeildinni að vera undirbúnir undir hvað sem er. Fyrir mitt leyti þá hvetur fjölbreytni starfsins til sífelldrar endurmenntunar og sjálfsendurskoðunar og heldur mér virkri í að sækja mér þær upplýsingar sem ég þarf hverju sinni. Það hvetur mig til að vera tilbúin að takast á við hvað sem er, og hefur þroskað mig sem manneskju á ólýsanlegan hátt.

Þó svo að starfið sé sérstaklega krefjandi, þá er þetta einnig það sem færir mér mesta gleði í lífinu. Að sjá krakka sigrast á óttanum sínum, eða ekki sigrast á óttanum, en gera samt það sem krefst af þeim við rannsóknir og meðferð, er ótrúleg upplifun.
Að fá að fylgjast með þeim og fjölskyldum þeirra þroskast og aðlagast að nýju hlutverki, að fá að vera partur af litlu sigrunum þeirra í gegnum meðferðarferlið, að fá að sjá þau útskrifast heim til sín en líka að fá að styðja við fjölskyldur þeirra barna sem falla frá eru forréttindi.

Ég tek því svo sannarlega ekki sem sjálfsögðum hlut og það veitir mér sjálfri hugrekki til að takast á við lífsins verkefni, en stundum þegar ég á erfiða daga get ég litið til baka og sótt innblástur í þeirra baráttur og sigra og ég reyni alla daga að tileinka mér æðruleysið, þrautseigjuna og baráttuandann sem einkennir börnin á barnadeildinni.
– Ellen Helga Steingrímsdóttir, Barnahjúkrunarfræðingur á Barnaspítala Hringsins




