Börn eiga það til að tækla sársauka allt öðruvísi en við fullorðna fólkið. Langveik börn tækla verki allt öðruvísi en börn sem eru ekki vön verkjum.
Ein leiðin er að fela sig. Þá meina ég ekki bókstaflega heldur t.d með peltor, grímu, málningu, sæng, bangsa. Það sem barnið er þá að gera er að útiloka allt áreiti á kroppinn og andlega partinn til þess að ná að einbeita sér að því að þola verkina. Ég á svo margar myndir af gormunum mínum í svona aðstæðum. Þessi eldri sem núna er orðinn 17 ára er orðinn mjög flinkur í þessu. Hann fer í survior mót og virkar fjarlægur. Talar ekki nema sé spurður og svarar þá bara stutt og hnitmiðað. Allt til þess að detta ekki úr því zone-i sem hann er í til að höndla verkina.
Sumir misskilja og finnst hann lokaður, af hverju ég svara fyrir hann þegar hann er spurður en þá á hann erfitt með að einbeita sér að báðu. Hann fær samt í andlitið frá ansi mörgu heilbrigðisstarfsfólki að hann “lúkki nú ekki verkjaður” og farið er að útskýra hvernig hann væri ef hann væri í ALVÖRU verkjaður. “Geggjað” fyrir hann að finna að honum sé ekki trúað því að hann er of flinkur að vera með verki.
Það er ömurlegt að horfa uppá það þegar þetta gerist. Ég er frekar róleg og skilningsrík mamma inná spítalanum en þegar þetta kemur uppá getur fokið í mig.
Það að börnin okkar fái ekki viðeigandi verkjameðferð er galið. Að þeim sé ekki trúað er galið. Fullorðnir einstaklingar myndu aldrei láta þetta ganga yfir sig. Sem betur fer er þetta ekki vandamál ef við hittum “okkar” hjúkrunarfræðinga og lækna. En því miður gerist þetta alltof oft að hann fær framan í sig að ef hann væri algjörlega að farast úr verkjum þá væri hann svona og hinseginn.
Svarið er NEI!
Það að bera saman bráðaverki og börn sem eru að díla við verki alla daga (mis mikið) er eins og að ætla að bera saman appelsínur og epli.
Gerum betur! fáum börnin til að finnast þau örugg að leita eftir aðstoð. Ekki að kvíða því að þeim sé ekki trúað.




