Maro x Mia Magic

Maro x Mia Magic

Við erum svo þakklátar fyrir nýjasta samstarfið okkar. En elsku besta Silja hjá Maro verslun hafði samband við okkur því hana langaði svo að gefa í Míuboxin. Úr varð að við hittumst á fundi sem var nota bene fyrsti fundurinn í nýja Míu rýminu okkar í Íshúsinu. 

Silja og Maro ætla að skaffa prjónurum garn og prjóna skvísurnar okkar prjóna svo í Míubox barna fyrir okkur. Vá svo gaman sko !  Við erum með 10 prjónara í þessu verkefni og getum við ekki beðið eftir að sýna ykkur allt sem þær eiga eftir að prjóna.

 

Við eru að bíða eftir fallegum miðum sem við setjum á allar flíkurnar en við fengum dásamlegan grafískan hönnuð í það verk fyrir okkur að hanna miðann fyrir okkur. Miðarnir koma vonandi í byrjun næstu viku og sjáið þið hér að ofan hönnun á miðunum á myndunum 4. 

Dalrós Líndal á þessar fallegu myndir og fékk ég þær lánaðar til að gera fréttina. Prjónaskvísurnar okkar hafa sumar prjónað áður fyrir okkur en flestar eru nýjar. Hægt er að skoða alla prjónarana okkar og instagram síðurnar þeirra með því að ýta HÉR.

Við hönnuðum þessa fallegu miða til þess að prjónararnir okkar geti merkt sér flíkurnar sem þær prjóna og barnið sem fær flíkina getur þá farið inná síðuna okkar og kíkt á það hver það var sem prjónaði fyrir það. 

Það er svo gaman fyrir bæði prjónarana og börnin að tengjast á þennan fallega hátt. 

Það er svo gaman að sjá hvað árið er að verða skipulagt. Öll Míubox á árinu hafa verið plönuð og erum við byrjaðar að plana árið 2023 einnig. 

Það gæti því verið smá bið í að fá Míubox.

 Maro er garnverslun  sem býður upp á hágæða garn og fylgihluti sem valdar eru af umhyggju og ástúð. Við leitumst við að bjóða upp á einstakar vörur og veita persónulega þjónustu og ráðgjöf.  

 

Verið velkomin í Maro á Hverfisgötu 39. 

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts