EPAL aðal styrktaraðili Míuverðlaunanna

EPAL aðal styrktaraðili Míuverðlaunanna

Það er með gríðarlega miklu stolti og þakklæti sem við tilkynnum ykkur að EPAL hefur gerst aðalstyrktaraðili Míuverðlaunanna sem haldin verða þann 15. september nk. Það er svo dásamlegt að sjá velvildina i kringum Mia Magic. Það að fyrirtæki eins og EPAL sé tilbúið að taka þátt og vinna með okkur í að gera Míuverðlaunin enn faglegri og meira elegant er algjörlega eitthvað sem við tökum ekki sem sjálfsögðum hlut.

„46 ár eru liðin frá því EPAL var stofnað. Sagan hófst þegar Eyjólfur Pálsson, stofnandi EPAL, kom heim frá Kaupmannahöfn að loknu námi í húsgagnahönnun. Fljótlega gerði hann sér ljóst að sitthvað vantaði á Íslandi svo leysa mætti verkefni sem honum voru falin á hönnunarsviðinu á þann hátt sem hann helst vildi. Þessi skortur varð kveikjan að stofnun EPAL.

Frá upphafi hefur markmið EPAL verið að auka skilning og virðingu Íslendinga á góðri hönnun og gæðavörum. Það hefur verið gert með því að kynna góða hönnun og bjóða viðskiptavinum EPAL þekktar hönnunarvörur frá Norðurlöndunum og víðar.

EPAL hefur allt tíð stutt íslenska hönnuði og lagt sig fram um að hjálpa þeim við að koma verkum sínum á framfæri og í framleiðslu auk þess sem starfsemi EPAL hefur aukið skilning og áhuga Íslendinga á hönnun“.

Hversu mögnuð saga sem Eyjólfur Pálsson á. Það sem hann hefur lyft íslenskri hönnun á hærra plan. Við hjá Mia Magic elskum að setja íslenska hönnun í Míuboxin og reynum við eins og við getum að gera þeim hönnuðum sem taka þátt með okkur góð skil með fallegum myndum og smá umfjöllun þegar við á.

Í þetta sinn höfum við fengið hina dásamlegu Evu Ruzu og hinn einstaklega hæfileikaríka Hlyn Atla Harðarsson, leikara til að kynna fyrir okkur Míuverðlaunin 2022. Þau eru bæði svo dásamleg á sinn allra besta hátt og fullkomin að okkur finnst í þetta hlutverk. Hlökkum einstaklega mikið til að eiga dásamlega kvöldstund með þeim og ykkur sem fáið boð á Míuverðlaunin.

Á allra fyrstu Míuverðlaununum vorum við einungis um 10 sem mættum þar sem strangar reglur voru vegna COVID. Enginn kynnir eða neitt þannig. Hinsvegar Mætti Ásmundur og afhenti fyrir okkur Míuverðlaunin og kom hann aftur í október. Sylvía Briem var þá kynnir og vá vá vá hvað við duttum í lukkupotinn að kynnast þeirri dásamlegu konu. Í þetta sinn verður það hin stórkostlega Brynja Dan sem afhendir Míuverðlaunin og hlökkum við mikið til að taka saman smá viðtal við Brynju ásamt því að taka viðtal við kynnina okkar og deila með ykkur þegar nær dregur september. Brynja Dan er sko kona sem þið þurfið að kynna ykkur ef þið hafið nú ekki þegar gert það ! Stórkostleg mannvera með geggjaða sýn á lífið.

Hér að neðan er hægt að sjá nokkrar myndir frá verðlaununum í apríl og október. Hlökkum til að deila einnig með ykkur framvindu mála af hönnun verðlaunagripsins sem er í höndum Ingu Elínar í þetta sinn. 

| Þórunn Eva

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts