Okkur þykir ansi vænt um fallegu endurskinsmerkin okkar. Myndin sem prýðir endurskinsmerkin er tekin úr nýju Míu bókinni, Mía fer í tívolí og var það Hugrún Ína Högnadóttir sem tók fallegu grafíkina frá Bergrúnu Írisi og hannaði þetta fallega endurskinsmerki. Við erum svo ótrúlega heppin að ELLINGSEN er með þau í sölu fyrir okkur. Bæði í netverslun og einnig í verslun sinni út á Granda.
„Sjáumst betur fyrir gott málefni. Með kaupum á endurskinsmerkjum okkar styrkir þú langveik börn og foreldra þeirra.
Félagið gefur langveikum börnum og foreldrum Míubox einu sinni í mánuði. Bækurnar Mía fær lyfjabrunn og Mía fer í tívolí eru einnig gefins fyrir öll börn sem á þurfa að halda. Stuðningur þinn hjálpar okkur til að gefa út fleiri bækur um Míu og halda áfram að færa langveikum börnum og foreldrum þeirra Míubox, en fjölmörg fyrirtæki hjálpa okkur einnig að gera boxin vegleg í hverjum mánuði.
Settu öryggið í fyrsta sæti, keyptu endurskinsmerki Miu Magic og styrktu langveik börn um leið.
Sjáumst í skammdeginu“
Endurskinsmerkin eru CE vottuð og framleidd í Eistlandi hjá einni fremstu endurskinsmerkja framleiðslu í heimi. Keðjan sem festist í endurskinsmerkið gerir það að verkum að merkið týnist síður, ef börnin ykkar eru eins og mín, þá þarf alltaf að vera að fjárfesta í endurskinsmerkjum því þau detta mjög auðveldlega af. EKKI ÞESSI ! Sem ég elska og höfum við fengið mikið hól fyrir einmitt þessa keðju.








