Farvi hannaði fyrir okkur nýjar umbúðir

Farvi hannaði fyrir okkur nýjar umbúðir

FARVI hönnunarstúdíó og prentþjónusta hönnuðu fyrir okkur nýjar umbúðir fyrir foreldra Míuboxin. Við erum komin með þetta í hendurnar og nú fer allt á fullt að mynda Míuboxin og afhenda þau. Við erum þó enn að bíða eftir umbúðum fyrir Míubox barna, en það eru prufu umbúðir. Mig langaði að verða smá umhverfisvænni og gera fjölnota umbúðir undir Miuboxin. Ég veit að þetta eru nú kannski ekki BOX heldur töskur en nafnið fær að halda sér. Hér að neðan fáið þið að sjá dásamlegar myndir frá Tobbu hjá Farvi.is þar sem þau eru að prenta á umbúðirnar.

Farvi.is eru að styrkja okkur um þessar dásamlegu umbúðir og alla vinnu í kringum þær.Hönnunina, prentunina og allt sem viðkemur þeim. Það sem ég elska er að þau prentuðu með bleki sem er með endurskini. Talandi um snilldina ! ELSKA !

Takk elsku Tobba fyrir að vera með eindæmum best. Það sem Mia Magic er endalaust þakklát ykkur hjónum fyrir velvildina. Það er algjörlega ómetanlegt að hafa svona gott fólk í kringum sig, TAKK!

Þau hönnuðu einnig Hugrekki pokana fyrir okkur í fyrra í kringum Míuverðalunin. Einstaklega fallegt allt saman !

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts