Valdís hannar Míuverðlaunin í ár

Valdís hannar Míuverðlaunin í ár

Ó hversu gott er að vera búin að fá listakonu til að hanna næstu Míuverðlaun. Það er alveg magnað hvað það er gott að geta tékkað af listanum verkefni sem búið er að græja. Valdís eða Dísa hjá Litlu hlutir lífsins var efst á lista hjá mér fyrir Míuverðlaunin í ár, 2023.  Ég sendi henni línu og vá hvað svarið kom mér á óvart. Það kom strax „já“ og var hún endslaust þakklát að hafa fengið þetta boð. Nei sko vá hvað ég er að elska það að fólkið sem ég fæ til að vera „memm“ sé jafn ástríðufullt yfir þessu verkefni og ég. Þá gerast nefnilega töfrarnir.

Valdís Ólafsdóttir útskrifaðist úr tveggja ára diplómanámi á keramikbraut frá Myndlistaskólanum í Reykjavík í maí 2020. Hún byrjaði að læra keramik árið 2014 í Myndlistaskóla Kópavogs og hefur unnið við það meðfram annarri vinnu og skóla síðan 2015 undir merkinu Dísa- Litlu hlutir lífsins. Valdís vinnur mest með postulín sem hún steypir í gifsmót og heillast mikið af ýmiskonar áferð og mynstri. Hún sker út einskonar óreglulegt ‘diamond cut’ mynstur og notar mikið litaðar sápukúlur sem hún blæs á postulínið. Einnig notar hún íslenskan svartan sand, ösku og vikur út í postulínið og gefur það fallega áferð og er tenging við hina íslensku náttúru. Að auki handmótar Valdís veggkúpla notar til þess ýmist steinleir eða hvítt og jafnvel svart postulín. Náttúrulegir og dempaðir litir heilla hana mest. Hún er með rúmgóða vinnustofu heima hjá sér í Kópavoginum.

Við hittumst á fundi í gær og eru drög að verðlaunagrip strax komin á teikniborðið. Ég get hreinlega ekki beðið eftir að leyfa ykkur að fylgjast með ferlinu í máli og myndum næstu mánuðina. Svo spennt að afhjúpa verðlaunagripinn þann 14. september nk á Míuverðlaununum sjálfum. Mæli með að þið skoðið litlu hlutir lífsins á instagram !

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts