Aw okkar allra bestu hittust loksins.
Amma Gugga, sem er amma Míu og Hrönn á leikstofunni sem er líka stór partur af Míu. Enda eiga margar Míur heima á barnaspítalanum. Á myndinni er Erik Valur með ömmu og Hrönn.
Amma Gugga var að koma í heimsókn til okkar í lyfjagjöf og kom um leið færandi hendi með fullt fang af Míu peysum sem prjónaðar hafa verið af dásamlegum konum sem heimsótt hafa Mas Palomas Lago á Kanarí. En það er prjónaklúbbur þar sem elskar að prjóna á Míu. Mjög margar peysur hafa komið frá Lago og vá hvað var gaman að ná loks mynd af einni afhendingunni. Takk amma Gugga fyrir að hafa hvatt prjóna skvísurnar þínar til að prjóna á Míu.
Ég fékk hugmynd, ef einhver þarna úti er til í að gera jóla Míu peysur þá væri það dásamleg viðbót við flóruna.
Hægt er senda peysur á
Mia Magic bt. Þórunn Eva
Blómvang 6
220 Hafnarfirði
Símanr. 7729600
Póstbox. Nettó Miðvangi
Dropp. Nettó Miðvangi




