Það er ekki hægt að nefna allt sem árið 2021 hefur haft uppá að bjóða en mig langaði að kíkja aðeins yfir árið og sjá hversu miklu Mia hefur í raun áorkað á ekki lengri tíma.
Skellum okkur í lauflétta yfirferð.
Í janúar fékk ég til liðs við elsku Kaju sem hefur verið ansi dugleg að taka myndir fyrir Mia Magic og tók hún til dæmis myndir fyrir heimasíðuna í janúar. Janúar fór einnig í mikið stúss og plön hvernig ég ætlaði nú að hafa þetta allt saman.
Míuboxin voru orðin ansi þekkt á einungis 1 mánuði og var hún elskulega Ólöf hjá Letterpress enga stund að hjálpa mér að gera þetta allt saman þeim mun fallegra með kortum sem við látum fylgja með hverju Míuboxi.
Ýr & Júlíana voru drauma módel fyrir Míu ásamt Erik Val syni mínum.
Dásamlega Fríða Björk kom inní þetta með mér eftir að ég og Aníta afhentum dóttir Fríðu Míubox í janúar. Fríða hefur unnið mikið fyrir Neistann en hún hefur bæði verið framkvæmdarstjóri og Formaður Neistans.
Ótrúlega gaman að hafa hana með og vá ég veit ekki hvar ég væri ef ég hefði ekki þessa ómetanlegu aðstoð.
Takk Fríða fyrir allt sem þú hefur gert fyrir Mia Magic á árinu 2021 og takk fyrir að vera yndisleg vinkona.
janúar – febrúar og mars var ansi mikið tileinkaður heimasíðunni, plana Míuverðlaunin, í mars byrjuðum við að plana samstarf með ILM sem tók stóran hluta úr árinu. Við keyrðum út páskaegg til módelana okkar, nokkura dásamlega sjálfboðaliða og krakka sem höfðu verið ansi dugleg að lesa bókina um Míu.
Heimasíðan sló í gegn fyrir fegurð og vil ég þakka öllum fyrir sem hafa hjálpað okkur að gera síðuna jafn flotta og raun ber vitni.
Fyrstu Míuverðlaunin fóru fram í þann 21. apríl. Sólheimar hönnuðu fyrir okkur verðlaunagripinn og fengum við Bergrún Íris loksins mynd af okkur sama eð bókina Mía fær lyfjabrunn.
Ásmundur Einar Daðason Félags og barnamálaráðherra afhenti fyrir okkur verðlaunin og var það okkur mikill heiður. Sigrún Þóroddsdóttir barnahjúkrunarfræðingur hlaut verðlaunin.
Fyrsta samstarfið okkar sló rækilega í geng og vá hvað var gaman að fá Ísbúð Huppu með okkur í lið. Samstarfið stóð yfir í tvær vikur og fengum við allan ágóða af sölunni af Míukrúttunum sem við hönnuðum með Ísbúð Huppu.
Við erum svo óendanlega þakklát fyrir þetta magnaða samstarf og vonandi verður Ísbúð Huppu til í svona samstarf aftur á nýju ári.
Yndislega Aníta Lind hafði samband við okkur og bauð okkur samstarf. Hún hannaði með okkur plaggat og fóru plaggötin sem hún gaf okkur í míuboxin. takk Aníta fyrir að hugsa til okkar.
Það er hægt að versla sér svona fallegt plaggat og rennur ágóðinn til okkar.
Einn stærsti draumurinn fyrir 2021 rættist en við fengum styrk frá Velferðasjóði Barna til þess að framleiða Míubangsa. Það er búið að taka dágóðann tíma að hanna Míu en yndislega Bergrún Íris hjálpaði mér að teikna Míu uppá nýtt eftir að ég gaf henni hugmyndir hvað ég var að hugsa.
Fyrsta Mían kom til okkar algjörlega fullkominn og eru núna 500 aðrar dúllur á leiðinni til okkar. Fáum þær vonandi í janúar/febrúar 2022.
Eitt það allra besta við Míuverkefnið er allt yndislega fólkið sem ég hef fengið að kynnast. Elva hjá Hulunni er ein af þeim og dýrmætari vináttu er erfitt að finna.
Við skelltum okkur sama í smá samstarf og hönnuðum lyklakippur með orðinu „hugrekki“ en það orð hefur svolítið verið okkar orð yfir árið. Þær ruku út og vá hvað þetta var skemmtilegt.
Lyklakippurnar ruku út og seldust upp á 2 sólarhringum. MAGNAÐ
ILM samstarfið er eitt af þeim samstörfum sem við eigum aldrei eftir að gleyma. Að vinna með fólki eins og Sögu fær mann til að gera gott enn betra.
Við seldum kertin til minningar um fallegu Kamillu Eir sem lést þann 6. maí sl. Hún fékk Míubox í mars og fannst okkur tilvalið að gera kertið í minningu um fallegu skottuna. Ilmurinn hét 2021 og sló í gegn.
Guðrún Kristín, mamma fallegu Kamillu hefur verið partur af Mia Magic dágóðan part af árinu og vonandi verður hún ávallt partur af Mia Magic.
Takk Saga Ýr og Hlynur fyrir magnað samstarf. Kertin seldust upp á mettím, 5 klst. Tryllt sko.
Það var svo gaman að halda Míuverðaunin aftur og var það yndislegi Gulli barnahjartalæknir sem hlaut verðlaunin í október. Ásmundur Einar kom og afhenti honum verðlaunin og var það hún Auður Gunnur sem hannaði með okkur verðlaunagripinn hans, blómavasi sem hefur vaki gríðarlega athygli.
Það verða gerðar töluverðar breytingar á Míuverðlaununum árið 2022 og kynnum við það allt saman betur síðar. Míuverðlaunin fara fram þann 15.09.2022.
Í október hlaut Mia Magic einnig styrk frá Geðsjóði sem á eftir að nýtast okkur ofsalega vel.
Nóvember var dásamlegur mánuður. Hann fór í sölu á fallegu hugrekki hálsmenunum sem við hönnuðum í samstarfi við Octagon. Menin seldust upp á mettíma eins og allt annað sem við höfum sett í sölu. Algjörlega sturluð staðreynd.
Þökkum við öllum innilega fyrir sem hjálpuðu okkur að vekja athygli á fallegu menunum.
Í nóvember fékk ég, Þórunn Eva, einnig verðlaunin Framúrskarandi ungur Íslendingur. Verðlaunin eru mikill heiður og ætla ég að búa til sér færslu um þetta. Ég er enn algjörlega orðlaus en hægt og rólega er ég að meðtaka þetta. Verð þakklátari með hverjum deginum sem líður.
Takk JCI á Íslandi, Takk Guðni fyrir frábæra ræðu til mín. Elskaði hana.
TAKK
Elsku yndislega Soffía hjá Skreytum hús hjálpaði okkur heldur betur mikið og gerði styrktarþátt þar sem Mia Magic var í aðalhlutverki. Við fengum sum sé lítið fallegt rými í Íshúsi Hafnarfjarðar í nóvember og var litla Mia Magic rýmið okkar tilbúið og nothæft um mánaðarmótin nóvember/desember.
Þakklætið í garð Soffíu og allra sem hún fékk með sér í lið er algjörlega ómetanlegt.
TAKK TAKK TAKK
Þetta var ansi hröð og gróf yfirferð en við fórum í nokkur roadtrip með míubox. Við gáfum mæðra og feðradagsgjafir. Við gerðum allskonar skemmtilegt með allskonar fólki og fyrirtækjum.
Ef þið kíkið á fréttasíðuna okkar, míuboxin okkar og instagramið sem dæmi þá sjáið þið ýmislegt sem komst ekki fyrir í þessari færslu hér.
Skemmtilegur endir á árinu er að ég er tilnefnd annað árið í röð til Hafnfirðings ársins. Ótrúlegur heiður.
Við hlökkum mikið til að byrja nýtt Mia Magic ár með ykkur og vonandi verður það jafn yndislegt og árið 2021.
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir 2021, við værum ekki hér án ykkar sem hjálpið okkur að gleðja öll þessi fallegu barna og foreldrahjörtu.
Þórunn Eva G. Pálsdóttir




