Ó svo spennandi þegar við fengum spurninguna hvort það væri komin listamaður fyrir næstu Míuverðlaun frá einum virtasta handverksmanni // konu Evrópu, samkvæmt Michelangelo Foundation. Inga Elín ætlar að hanna fyrir okkur næstu Míuverðlaun og verð ég bara smá feimin og stolt á sama tíma að segja ykkur frá þessu. Þetta er svo risa stór viðurkenning fyrir Mia Magic að listakona eins og Inga Elín bjóðist til að hanna fyrir okkur verðlaunagripinn í ár.

Inga Elín er flestum íslendingum vel kunn og kannast held ég flestir við fallegu veltibollana sem hún hannar og selur undir fallega vörumerkinu sínu. Einnig hannar Inga Elín diska, skálar, kertastjaka og skúlptúra svo við nefnum eitthvað af því flotta handverki sem hún hannar.
Míuverðlaunin fara fram þann 15. september, 2022. Hægt og rólega kynnum við fyrir ykkur allt í kringum verðlaunin en við erum á fullu að undirbúa þau. Þetta eru bara svo stórar og geggjaðar fréttir að við gátum hreinlega ekki setið á þessu leyndarmáli lengur.
Inga Elín hefur vakið athygli fyrir hönnun sína um allan heim og birst umfjöllun um hana í mörgum af helstu tískublöðum eins og t.d VOUGE… ég þarf smá að klípa mig annað slagið að þetta sé bara í alvöru að gerast. Inga Elín að hanna Míuverðlunin 2022.
Takk elsku Inga Elín og vá hvað okkur hlakkar til að fylgjast með fallega verðlaunagripnum fæðast hægt og rólega. Ég fór um daginn og hitti hana og settum við smá línu hvað það er sem ég og hún vorum að hugsa. Svo er bara að plana fallega myndatöku og hafa allt reddý fyrir 15. september.
Þangað til næst…
| Þórunn Eva













