Takk allir sem komu til okkar á Fit&Run í ár. Vá vá vá hvað var gaman að sjá og hitta ykkur öll. Rakel Ósk kom á föstudaginn og náði nokkrum myndum af básnum okkar í ár. Takk Iceherbs fyrir að hjálpa okkur að halda básinn í ár. Það er svo gaman og mikilvægt að vera sýnileg.
Söluvörurnar sem voru á sýningunni eru ekki búnar svo ef ykkur langar að kíkja á það sem er í boðinu þá eru linkar hér.
Camelbak brúsar
Míu taupokar
Míu hálsbönd
Takk fyrir að koma, takk fyrir að versla hjá okkur og styrkja við starfið okkar og takk fyrir að vera þið!
Myndir: Rakel Ósk Sigurðardóttir




