Elsku hjartans Míu vinir.
Mía óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.
Takk fyrir dásamlega viðburðaríkt ár. Þakklætið í ykkar garð er vart hægt að setja í orð og því stend ég smá á gati með orða val í þessari annars hugljúfu kveðju til ykkar.
Mia Magic væri ekki það sem það er í dag nema fyrir ykkur. Dásamlega foreldra, ömmur, afa, frænkur frænda, öll hugrökku börnin, allir sem deila póstunum okkar, öll fyrirtækin sem eru tilbúin að styðja við okkur á einn eða annan hátt, allt dásamlega fólkið sem gerir allt til þess að við náum sambandi við rétta aðila þegar það þarf. Ég næ aldrei að telja alla upp, en þið vitið öll hver þið eruð.Ekki má gleyma öllum þeim félagasamtökum sem eru tilbúin að leggja okkur lið með dásamlegum styrkjum svo við getum haldið starfi okkar áfram enn eitt árið.

Það er margt skemmtilegt á plani fyrir árið 2025. Ég er svo óendanlega heppin að vera með dásamlegt fólk í kringum mig sem hjálpar mér með Mia Magic. Við ætlum að fara í nokkur stærri verkefni, við ætlum að halda Míuboxunum áfram og er búið að ákveða landshluta fyrir vorið. Við ætlum að einblína á krakkana og gera Reykjavíkurmaraþonið ógleymanlegt fyrir þau. Míuverðlaunin verða á dagskránni í haust og margt margt fleira.
Takk fyrir ykkur öll, hlökkum til að vera memm á árinu 2025!
Jólakveðja og áramótaknús!
Þórunn Eva, stofnandi Mia Magic.




