gleðilegt nýtt ár | samstarf

gleðilegt nýtt ár | samstarf

Gleðilegt nýtt ár kæru Míu vinir okkar.
 
Vegna þess að Fríða er á leið erlendis með dóttur sína í læknaheimsókn þá ætlum við að afhenda janúar Míuboxin seinna í janúar, líklega lok janúar.
 
 Það er spennandi samstarf að koma inn núna í janúar sem við getum ekki beðið eftir að deila með ykkur. Það verður vonandi hægt í næstu viku. 
 
 Við erum núna að senda á þá sem hafa verið í samstarfi með okkur á árinu 2021 bækling sem við útbjuggum varðandi samstarfið okkar og nokkrar breytingar þar á. Ef þið vijið fá bækling en ekki fengið hann sendan endilega sendið okkur póst á info@miamagic.is.
 
Þórunn Eva
 

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts