Hélt fyrirlestur fyrir bekkjarfélaga sína

Hélt fyrirlestur fyrir bekkjarfélaga sína

Ég fékk sætustu skilaboð sem ég hef fengið í langan tíma í gær. Sigrún mamma Katrínar Unu og Elvíru Maríu heitinnar sendi mér myndir og texta sem ég verð bara að fá að deila með ykkur. Þær systur hafa verið partur af Míu nánast frá upphafi.

Skilaboðin sem ég fékk:

„Verð deila með þér ???? Katrín Una kynnti Míu fyrir bekknum sínum ???????? stóð sig svo vel að segja þeim frá Míu og sýna bækurnar. Hún tók líka með sér lyklakippuna, endurskinsmerkið og lykla bandið ????????„

Dásamlega Katrín Una býr á Siglufirði, ef hún væri ekki svona langt í burtu tæki ég hana með mér á þær kynningar sem verið er að bóka mig á þessa dagana. Held það séu fáir jafn flottir í þetta verkefni og hún.

Skilaboðin héldu áfram:

„Vildi meira segja vera klædd svipað og Mía. Með 2 snúða í hárinu ????„

Hafið þið séð það sætara?

Takk elsku Katrín Una fyrir að vera svona stór partur af því að allir fái að kynnast Míu. Takk fyrir að halda minningu elsku systir þinnar á lofti með svona fallegri kynningu og takk fyrir að vera fyrirmynd okkar allra. Þú ert frábær elsku Katrín Una.

Ein bónus mynd í lokin sem gerir þennann póst bara enn sætari.

 

 

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts