Hildur Árnadóttir aka h.loft hannar Míuverðlaunin 2025

Hildur Árnadóttir aka h.loft hannar Míuverðlaunin 2025

Það er með miklu stolti sem við kynnum Hildi Árnadóttur sem hönnuð Míuverðlaunanna 2025.

„Míuverðlaunin eru árleg verðlaun til að heiðra þá sem koma að þjónustu langveikra barna á einn eða annan hátt. Einhver sem hefur hjálpað eða stutt við þig og þína fjölskyldu á erfiðum tíma. Það sem þeim finnst vera “bara vinnan sín” getur skipt sköpum fyrir aðstandendur langveikra barna og börnin sjálf. Hægt er að tilnefna heilbrigðisstarfsmann í hvaða starfstétt sem er, hvar á landinu sem er. Verðlaunin fara fram þann 14. október á sjálandi“.

Hildur Árnadóttir er arkitekt sem lauk mastersnámi í arkitektúr frá Listaháskóla Íslands vorið 2024. Samhliða arkitektanáminu hefur hún verið að framleiða og selja keramik undir nafninu h.loft. Vinsælasta vara h.loft eru skálar sem sem hún kallar skeljar. Fíngerðar, mjúkar og kúrvaðar línur einkenna skeljarnar, er hver og ein handgerð og því engar tvær eins. Hildur starfar sem arkitekt á arkitektastofunni THG en þar áður rak hún hönnunarstudioið Béton Studio.

Myndir: Rakel Ósk Sigurðardóttir

Skráðu þig og þú færð skemmtilegt fréttabréf sent einu sinni í mánuði.

Related Posts