Vá hvað okkur þykir vænt um að sjá myndir af ykkur með fallegu hugrekki hálsmenin sem við framleiddum í samstarfi við Octagon. Þau hafa algjörlega slegið í gegn. Elsku Soffía hjá Skreytum Hús fékk sér eitt gyllt hálsmen hjá okkur og var ótrúlega gaman þegar hún sendi okkur mynd af sér með það.

Hugrekki er ótrúlega fallegt orð og geta flest allir samsamað sig því. Það er enginn með sama hugrekkið og verðum við að muna að virða hugrekki og hræðslu hvor annars. Þurfum alls ekki að skilja það að við séum ekki öll eins, en að bera virðingu fyrir hugrekki og hræðslu þeirra sem við umgöngumst er eitt það hugrakkasta sem við getum gert.
Anna Kristín Scheving tók þessar fallegu myndir fyrir okkur. Við fórum í Hörpuna og áttum þar yndis tíma með þessum flottu hetjum. Sara Natalía og Lilja Bríet komu fyrst og nokkrum dögum seinna mættu María Dís og Erik Valur.
Þeim fannst þetta öllum svo gaman og þökkum við þeim innilega fyrir hjálpina. Þau eru öll svo hugrökk að hafa komið og látið mynda sig. Það er alls ekki auðvelt eins og við vitum.
Hálsmenin eru fyrir alla, það hafa komið inn skilaboð með spurningum um hvort þetta sé bara fyrir veik börn, svarið er „nei“. Hálsmenin hafa verið keypt fyrir ömmu sem er hugrökk fyrir það að hafa selt íbúðina sína og ákveðið að færa sig í þjónustuíbúð, frænku sem er að flytja til útlanda í skóla, barn sem missti pabba sinn skyndilega, mömmu sem er að standa sig vel í vinnunni, lítinn frænda sem var að byrja í skóla og þar fram eftir götunum… gæti haldið endalaust áfram en þetta er bara brot af þeim ástæðum sem fólk er að versla hálsmen.
Hægt er að versla sér hugrekki hálsmen HÉR.
| Míu teymið




