Okkur langar að þakka ykkur öllum innilega fyrir sem keyptuð kerti. ILM x Mia Magic kertin seldust uppá á innan við 5 klst. Á fyrstu 5 mín á sölunni fóru 17 kerti. Sem er algjörlega tryllt.
Næst er það ILM x Mia Magic viðburðurinn á morgun, en þangað getið þið sótt kertin ykkar. Viðburðurinn er staðsettur að Suðurgötu 9, Hafnarfirði. Í fallgum bakgarði en þar er staðsett yndisleg verslun/vinnustofa sem ber nefnið The Shed.

Við verðum með léttar veitingar, Míubækur fyrir þá sem vilja, live músík og notaleg heit. Hlökkum til að sjá ykkur og takk aftur fyrir trylltar viðtökur. Svo gaman !
Sjáumst á morgun !




